Innlent

Fjögurra bíla árekstur á Höfðabakka

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Einn var fluttur á slysadeild.
Einn var fluttur á slysadeild. Vísir/vilhelm
Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Höfðabakka og Bíldshöfða um klukkan hálf tvö í dag. Einn var fluttur minniháttar slasaður á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um að ræða aftanákeyrslu sem svo hafði keðjuverkandi áhrif á nærliggjandi bíla.

Tveir dælubílar voru sendir á vettvang til hreinsunarstarfa auk sjúkrabíla. Þá urðu nokkrar tafir á umferð vegna óhappsins en vinna á vettvangi stóð yfir í rúman klukkutíma. Þannig tilkynnti Strætó til að mynda um tafir á ferðum vegna slyssins nú snemma á fjórða tímanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×