Þykkt og mjúkt frá Kósýprjón Kósýprjón kynnir 30. ágúst 2019 16:15 Þykkt merino ullargarn sem nota þarf hendurnar til að prjóna úr fæst hjá Kósýprjón.is kosyprjon.is
Kósýprjón.is netverslun selur tröllagarn eða „chunky“ garn, úr evrópskri merinoull. Prjónað er úr garninu með höndunum og tekur ekki nema eina kvöldstund að prjóna þykkt og kósý teppi. Anna Bragadóttir stofnaði verslunina um síðustu áramót ásamt systkinum sínum. Þau verða á Haust Pop-Up markaði netverslana í Víkingsheimilinu um helgina með vörur og tröllagarn.Anna Bragadóttir stofnaði Kósýprjón ásamt systkinum sínum.„Við erum gríðarlega spennt fyrir markaðnum um helgina og ætlum að lauma inn smá jólafíling. Við seljum bæði garnhnykla sem fólk prjónar úr sjálft en höfum einnig verið að þróa vörur, draumafangara, púða, kransa og barnahreiður sem hægt er að kaupa tilbúið. Þá erum við með sérstakt púða-kit sem inniheldur garn í einn púða, uppskrift og fyllingu,“ útskýrir Anna og segir fólk sem aldrei hafi prjónað neitt á ævinni fari létt með að prjóna úr tröllagarninu.„Sjálf hafði ég aldrei komið nálægt prjónaskap, hvað þá bróðir minn. Meira að segja maðurinn minn er búinn að gera púða, þetta er svo auðvelt og dásamlega gaman að sjá hlutinn verða til. Það tekur ekki nema kvöldstund að prjóna teppi og innan við hálftíma að prjóna púða. Við bjóðum þó upp á námskeið í að prjóna úr ullinni og eins eru að finna leiðbeiningar og myndbönd á heimasíðunni okkar. Við mælum með að fólk vinni ullina sérstaklega áður en prjónað er úr henni og leiðbeinum viðskiptavinum með það. Fyrsta námskeiðið okkar er hringpúðanámskeið.“Einn hnykill af tröllagarni vegur 5 kíló og hægt er að kaupa heilan og hálfan hnykil. Til viðmiðunar þarf einn hnykil til þess að prjóna stórt teppi. „Margir kaupa einn hnykil og prjóna miðlungsteppi og púða,“ útskýrir Anna. Nánari upplýsingar um tröllagarnið er að finna á kosyprjon.is og á Instagram og Pinterest og þá eru vörurnar komnar í sölu í Litlu Hönnunarbúðinni í Hafnarfirði og í Jöklu á Laugavegi. Haust Pop-up markaðurinn fer fram í Víkingsheimilinu í Fossvogi og hefst 31. ágúst og stendur til 1. september. Opið verður milli klukkan 11 og 17. Þessi kynning er unnin í samstarfi við Kósýprjón.is.
Hús og heimili Mest lesið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Lífið Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Fleiri fréttir Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Menning