Einn handtekinn grunaður um hrottalegt morð á áhrifavaldi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 31. júlí 2019 21:12 Í yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum í Rússlandi kom fram að einn hefur verið handtekinn grunaður um morðið á hinni 24 ára Ekaterinu Karaglanovu sem fannst látin í ferðatösku á heimili sínu á laugardag. Árásarmaðurinn hafði skorið hana á háls og stungið hana ítrekað með eggvopni. Instagram
Í yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum í Rússlandi kom fram að einn hefur verið handtekinn grunaður um morðið á hinni 24 ára Ekaterinu Karaglanovu sem fannst látin í ferðatösku á heimili sínu á laugardag. Árásarmaðurinn hafði skorið hana á háls og stungið hana ítrekað með eggvopni.Sjá nánar: Áhrifavaldur á Instagram fannst látinn í ferðatösku á heimili sínuLögreglan vildi ekki greina frá nafni hins grunaða en viðkomandi var yfirheyrður í dag. Í gær greindi rússneska lögreglan þó frá því að mögulegt væri að afbrýðisamur fyrrverandi kærasti gæti verið ábyrgur fyrir morðinu því til hans hafi sést á eftirlitsmyndavélum nokkrum dögum fyrir hvarf Karaglanovu. Karaglanova hafði nýlega kynnst öðrum manni og þau tilkynnt um ástarsamband sitt. Karaglanova og nýi kærastinn voru búin að skipuleggja ferðalag til Hollands og ætluðu að halda upp á afmælisdaginn hennar.Auk þess að vera áhrifavaldur á Instagram og nýútskrifaður læknir hélt Karaglanova úti vinsælu ferðabloggi og með þúsundir áskrifenda.InstagramÆðsta rannsóknarnefnd rússneska ríkisins fer með rannsókn málsins en morðið hefur vakið mikinn óhug á meðal íbúa í Rússlandi og vakið athygli út fyrir landsteinana. Lögreglan í Rússlandi fékk leyfi frá leigusala Karaglanovu til að fara inn í íbúðina eftir að áhyggjufull fjölskylda hennar tilkynnti um hvarfið. Það var þá sem lögreglan kom að líki Karaglanovu sem ódæðismaðurinn hafði komið fyrir í ferðatösku og skilið eftir úti á gangi. Karaglanova var með 85.000 fylgjendur á Instagram og hafði nýlega útskrifast sem læknir með sérhæfingu í húðlækningum. Hún hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli í heimalandi sínu því hún þykir nauðalík bresku leikkonunni Audrey Hepburn en Karaglanova birti sjálf nokkrar myndir af Hepburn á Instagram.
Rússland Samfélagsmiðlar Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira