Hólmfríður: Það hefur enginn trú á okkur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. júlí 2019 21:45 Hólmfríður Magnúsdóttir hefur reynst Selfyssingum mjög vel í sumar vísir/bára
Hólmfríður Magnúsdóttir og liðsfélagar hennar í liði Selfoss þurftu að sætta sig við tap gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld í Pepsi Max deild karla. „Mér fannst við ekki spila vel í fyrri hálfleik en við komum brjálaðar út í seinni hálfleik og stóðum vel í þeim. Skorum eitt mark og hefðum getað gert betur og allavega jafnað leikinn því mér fannst við vera betri aðilinn síðustu 30 mínúturnar,“ sagði hin reynslumikla Hólmfríður eftir leikinn. Breiðablik var 2-0 yfir í hálfleik eftir mörk frá Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur og Alexöndru Jóhannsdóttur. Magdalena Anna Reimus minnkaði metin í seinni hálfleik og reyndu Selfyssingar hvað þær gátu að jafna undir lokin. Í hálfleik benti lítið til þess að Selfoss myndi koma til baka, heimakonur voru með mikla yfirburði í fyrri hálfleik. „Nei, það hefur enginn trú á okkur,“ sagði Hólmfríður. „En það er mikilvægt að við höfum trú á okkur sjálfum og gefumst aldrei upp. Selfoss-liðið er þekkt fyrir það.“ „Við erum allar í þrusu formi og við ætluðum okkur að koma til baka. Við höfum gert það áður og hvort sem það er Breiðablik eða eitthvað annað lið, það skiptir ekki máli.“ „Við höfum trú á okkur, en Breiðablik er líka með þrusugott lið og með frábæra leikmenn í hverri stöðu en við gáfum þeim góðan leik í dag.“ Fyrir leikinn hafði Selfoss ekki tapað leik í deild og bikar síðan 5. júní. Hefur þetta tap einhver áhrif á þær upp á framhaldið? „Stundum er bara gott að fá spark í rassinn.“ „Það er ekkert alltaf þannig að maður á að vinna alla leiki, við komum bara brjálaðar í næsta leik,“ sagði Hólmfríður Magnúsdóttir.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira