Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, birti tölur um fjölda dýranna árið 2018 á mánudag og sagði það „sögulegt afrek“ fyrir Indland þar sem stofninn hafði dvínað niður í aðeins 1.400 dýr fyrir um 15 árum síðan.
Tígrisdýr eru talin á Indlandi á fjögurra ára fresti og segir Prakash Javadekar, umhverfisráðherra landsins, að dýrin hafi verið 2.226 talsins árið 2014.
Tígrisdýrið er þjóðardýr Indlands og er stofn tígrisdýra í útrýmingarhættu samkvæmt náttúruverndunarlögum landsins.
Átök milli manna og tígrisdýra hafa aukist verulega síðan á áttunda áratugnum, þegar Indland setti á laggirnar verndunarátak fyrir tígrisdýr þar sem vernduð svæði í þjóðgörðum voru tileinkuð dýrunum og það varð glæpur að drepa þau.

„Fyrir níu árum síðan var ákveðið á fundi í Sankti Pétursborg í Rússlandi að markmiðið væri að tvöfalda tígrisdýrastofninn árið 2022. Við á Indlandi náðum því markmiði fjórum árum fyrr en áætlað var,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að vernduð svæði væru orðin 860 en árið 2014 voru þau 692. Einnig hafi friðuðum svæðum í einkaeign fjölgað úr 43 í 100 frá árinu 2014.
Belinda Wright, stofnandi Verndunarsamtaka náttúrulífs á Indlandi (Wildlife Protection Society of India) sagði að Indland ætti að vera stolt af árangri sínum þar sem þessi nýjasta rannsókn væri mun viðameiri og nákvæmari en fyrri rannsóknir.

Átökin á milli dýralífs, sem orsakast af minnkandi skógum og gresjum, og manna eru banvæn. Upplýsingar frá yfirvöldum sýna að á hverjum degi deyi einn einstaklingur vegna tígrisdýra eða fíla.
Í síðustu viku eltu nokkrir þorpsbúar uppi tígrisynju og drápu hana með prikum, eftir að hún drap konu sem vann á bóndabæ í Khiri þorpinu á norður Indlandi. Svæðið er hluti af Pilibhit tígrisdýragarðinum, sagði Vivek Tiwari, skógarvörður.
Tiwari sagði að lögreglan hafi handtekið fjóra þorpsbúa. Svæðið er nærri 350 km. austur af Nýju Delí.
Wright sagði að yfirvöld ættu ekki að Slaka á verndunaraðgerðum og ættu að forðast „stór línuleg inngrip, þar á meðal vegi, lestarteina, rafmagnslínur og skurði í gegn um vernduð svæði þar sem það gæti aukið tíðni átaka á milli tígrisdýra og manna.“
Fílar og tígrisdýr Indlands eru meðal þeirra dýra sem mest eru veidd í landinu. Bein og skögultennur þeirra eru eftirsótt og seld á svarta markaðnum til notkunar í kínverskum lækningum. Fílar eru einnig í hættu vegna lesta á ferð.