Bjarki Már Sigvaldason látinn Sylvía Hall skrifar 29. júní 2019 20:52 Ástrós Rut og Bjarki Már voru einlæg og samstíga í veikindum Bjarka en hann barðist við krabbamein í sjö ár. Erling Ó Aðalsteinsson
Bjarki Már Sigvaldason er látinn 32 ára að aldri. Hann féll frá á fimmtudaginn eftir harða baráttu við krabbamein. Bjarki Már lætur eftir sig eiginkonu, Ástrós Rut Sigurðardóttur, og tíu mánaða gamla dóttur þeirra Emmu Rut. Bjarki Már hafði barist við krabbamein í hartnær sjö ár en hann greindist 25 ára gamall með krabbamein í ristli. Barátta hans var aðdáunarverð og vakti mikla athygli sem og einlæg frásögn þeirra hjóna af veikindunum og ferlinu sem þeim fylgir. Í viðtali við Ísland í dag í vetur sögðu Ástrós og Bjarki sögu sína og ræddu veikindin. Þá var orðið ljóst að um það bil fimm æxli væru komin víðs vegar um heilann sem ekki væri hægt að skera á brott. Var þeim tilkynnt að aðeins nokkrir mánuðir væru eftir. „Það er það eina sem ég hugsa um núna. Að vakna á hverjum degi og lifa einn dag í einu,“ sagði Bjarki.Innslagið má sjá hér að neðan.Bæði Ástrós og Bjarki voru öflug í baráttunni fyrir krabbameinsveika og vitundarvakningu í kringum sjúkdóminn. Ástrós var um tíma formaður Krafts, félags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Vakti það mikla athygli þegar hún vakti máls á þeim mikla kostnaði sem fylgir veikindunum. HK og Breiðablik mættust í styrktarleik fyrir Bjarka Má á síðasta ári.Klár, góðhjartaður og yndislegur pabbi Fjölskyldumeðlimir Bjarka minnast hans í dag með hlýhug. Í einlægri færslu þakkar Ástrós honum fyrir að hafa komið inn í líf sitt, hún hafi orðið ástfangin við fyrstu sýn og sé það enn í dag. Góðu minningarnar munu fylgja henni og dóttur þeirra alla tíð. „Ég ætla að standa mig í stykkinu fyrir þig, ég mun ala upp Emmu eftir okkar lífsgildum alveg eins og við töluðum um og mun ávallt passa uppá að hún eigi fullt af fallegum minningum um þig.“ Faðir Bjarka segir hann hafa gert meira á þeim sjö árum sem hann háði baráttuna við meinið en margur gerir yfir ævina. Hann hafi þó fyrst og fremst kennt fólkinu í kringum sig margt, að gefast aldrei upp og lifa og njóta eins og hægt var. „Hann er fyrirmyndin mín og gerði fólk betra sem umgegst hann. Hans verður sárt saknað en hann lifir áfram í gegnum dóttur sína og er það mikil blessun,“ skrifar faðir hans og þakkar fyrir stuðninginn undanfarin ár. Bræðurnir Vilhjálmur og Þórhallur Siggeirssynir tóku sig til í vor og bjuggu til myndband þar sem farið var yfir fótboltaferil Bjarka en hann þótt gríðarlegt efni á sínum tíma. Þar er m.a. rætt við samherja og mótherja hans úr yngri flokkunum sem og þjálfara hans, bæði hjá HK og yngri landsliðunum. Myndbandið má sjá að neðan.
Andlát Kópavogur Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Kolbeinn Sigþórsson í leikmannahópi HK í styrktarleik Bjarka Más Meistaraflokkur HK mætir úrvalsliði fyrrum leikmanna félagsins í styrktarleik fyrir Bjarka Má Sigvaldason í Kórnum í kvöld. 27. desember 2012 09:40 Rándýrt að greinast með krabbamein Hulda Hjálmarsdóttir fagnar umræðunni sem myndaðist í vikunni þegar Ástrós Rut Sigurðardóttir birti myndband þar sem hún ræddi mikinn kostnað sem fylgir því að glíma við krabbamein á Íslandi. 1. apríl 2017 11:30 Fengu góðar fréttir eftir draumabrúðkaupið: „Æxlin í lungunum hafa ekkert stækkað“ Ástrós Rut Sigurðardóttir og Bjarki Már Sigvaldason hittu lækni eftir brúðkaupsferðina sína að og fengu þær fréttir að krabbameinslyf Bjarka sé að virka. 18. ágúst 2017 10:15 Draumurinn er að eignast barn Ástrós og Bjarki fá enga niðurgreiðslu á 650 þúsund króna glasafrjóvgun þrátt fyrir að náttúrulega leiðin sé ekki í boði vegna krabbameinsmeðferða. 31. mars 2017 19:47 „Langar fyrst og fremst að mínar stelpur eigi sem best líf“ Bjarki Már Sigvaldason hefur barist við krabbamein í sex ár. Hann er eingöngu 31 árs gamall og nú segja læknar að nú sé ekkert við ráðið og hann eigi stutt eftir. 19. nóvember 2018 20:00 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Birgitta Líf hefði mátt sýna meiri nærgætni eftir havaríið á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira
Kolbeinn Sigþórsson í leikmannahópi HK í styrktarleik Bjarka Más Meistaraflokkur HK mætir úrvalsliði fyrrum leikmanna félagsins í styrktarleik fyrir Bjarka Má Sigvaldason í Kórnum í kvöld. 27. desember 2012 09:40
Rándýrt að greinast með krabbamein Hulda Hjálmarsdóttir fagnar umræðunni sem myndaðist í vikunni þegar Ástrós Rut Sigurðardóttir birti myndband þar sem hún ræddi mikinn kostnað sem fylgir því að glíma við krabbamein á Íslandi. 1. apríl 2017 11:30
Fengu góðar fréttir eftir draumabrúðkaupið: „Æxlin í lungunum hafa ekkert stækkað“ Ástrós Rut Sigurðardóttir og Bjarki Már Sigvaldason hittu lækni eftir brúðkaupsferðina sína að og fengu þær fréttir að krabbameinslyf Bjarka sé að virka. 18. ágúst 2017 10:15
Draumurinn er að eignast barn Ástrós og Bjarki fá enga niðurgreiðslu á 650 þúsund króna glasafrjóvgun þrátt fyrir að náttúrulega leiðin sé ekki í boði vegna krabbameinsmeðferða. 31. mars 2017 19:47
„Langar fyrst og fremst að mínar stelpur eigi sem best líf“ Bjarki Már Sigvaldason hefur barist við krabbamein í sex ár. Hann er eingöngu 31 árs gamall og nú segja læknar að nú sé ekkert við ráðið og hann eigi stutt eftir. 19. nóvember 2018 20:00