Faðir í leit að dóttur sinni Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 8. júní 2019 16:00 Mælt er með spennandi og áhugaverðri frumraun Stinu Jackson.
Silfurvegurinn Stina Jackson Þýðing: Friðrika Benónýsdóttir Blaðsíður: 304 Útgefandi: Ugla Silfurvegurinn er fyrsta skáldsaga Stinu Jackson og var valin besta sænska glæpasagan 2018 af Sænsku glæpasagnaakademíunni. Í því vali gerði dómnefndin vel því bókin er bæði vel skrifuð og spennandi og með eftirminnilegum persónum. Söguþráðurinn er á þá leið að fyrir þremur árum hvarf Lina, dóttir Lelle, sporlaust. Allt frá því hefur Lelle í örvæntingu leitað dótturinnar sem hann er sannfærður um að sé á lífi. Hin unga Meje býr með afskiptalausri móður og verður ástfangin af pilti sem er hluti af stóreinkennilegri fjölskyldu. Leiðir Lelle og Meje liggja síðan saman. Silfurvegurinn er óvenju góð frumraun. Hún er vel skrifuð og mikil natni er lögð í persónusköpun. Myndin af föðurnum, Lelle, keyrandi um dag hvern, leitandi að dóttur sinni verður mjög áleitin og sterk. Hinni yfirþyrmandi sorg hans er lýst á áhrifamikinn hátt og sömuleiðis voninni um að dóttirin finnist. Sú ósk virðist vonlaus en Lelle rígheldur í hana. Hin umkomulausa Meje er sömuleiðis afar trúverðug persóna, ung stúlka sem þráir að finna að hún tilheyri einhverjum og setur alla sína trú á ungan pilt. Í seinni hluta sögunnar birtist ný aðalpersóna nokkuð óvænt og á alla samúð lesandans. Þar verður einnig þróun í sambandi Lelle og Meje sem er lýst á fallegan hátt. Í fyrri hluta bókarinnar er að finna sálfræðilega dýpt sem því miður er sjaldgæft að finna í glæpasögum. Seinni hluti bókarinnar er síðan mjög spennandi. Gallinn er þó sá að ýmislegt sem opinberast þar virkar ekki nægilega trúverðugt. Þar hefði höfundur mátt endurhugsa eitt og annað. Þetta breytir þó engu um það að hér er á ferð áhugaverð og spennandi frumraun. Glæpasagnaunnendur ættu ekki að missa af Silfurveginum sem er örugglega ein af bestum bókum í glæpasagnaflóði þessa vors. Bókin er ágætlega þýdd en lesandinn rekst of oft á furðulegar innsláttarvillur, sumar þeirra æpa beinlínis á hann. Slíkt á ekki að gerast.Niðurstaða: Vel skrifuð glæpasaga með eftirminnilegum aðalpersónum. Spennandi og áhrifamikil. Glæpasagnaunnendur ættu ekki að láta þessa bók framhjá sér fara. Þeir verða ekki sviknir.
Bókmenntir Menning Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira