Vígasveitir í Jemen hörfa Hallgerður Kolbrún E Jónsdóttir skrifar 11. maí 2019 14:44 Lítill strákur gengur á milli matarpakka sem hjálparsveitir hafa flutt til Jemen. Getty/Mohammed Hamoud
Uppreisnarherinn í Jemen hefur tilkynnt að byrjað sé að fjarlægja vígasveitir hans frá helstu hafnarstæðum landsins. Nýlega fóru fram friðarviðræður á milli uppreisnarmanna og stjórnar landsins til að enda fjögurra ára borgarastyrjöld. Greint er frá þessu á vef Reuters. Vitni staðfesti við Reuters að vígasveitir væru á leið út úr Saleef höfn, sem er staðsett nálægt borginni Hodeidah sem talin er mjög landfræðilega og hernaðarlega mikilvæg. Vígamenn segja einnig að þeir séu á faraldsfæti frá Ras Isa höfninni. Vonast er eftir að það að vígasveitir dragi sig í hlé sé stórt skref í sáttatilleitunum til að ljúka stríðinu sem hefur meðal annars valdið hungursneyð í landinu. Mohammed Ali al-Houthi, leiðtogi byltingarráðs uppreisnarmanna sagði að vígasveitir hafi byrjað að fara frá höfnunum kl. 10 á staðartíma í morgun. Al-Masirah sjónvarpsstöðin sem rekin er af Houthi mönnum segir Sameinuðu þjóðirnar hafa eftirlit með brottför vígasveita en Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki staðfest þetta. Hafnirnar sem um ræðir eru helstu skipaflutningaleiðir Jemen, en um höfn Hodeidah, sem liggur að Rauðahafinu, er stór hluti varnings sem fluttur er inn í Jemen ferjaður, sem og aðstoð frá hjálparsamtökum. Um Saleef höfn er korn flutt og olía um Ras Isa.
Jemen Mest lesið Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Vildi drepa soninn svo hann kæmist til himna Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið vegna norðan áhlaups Veður „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Erlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira