Landsmenn njóti veðurblíðunnar á meðan færi gefst Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. apríl 2019 09:20 Svona lítur hitaspáin út síðdegis í dag. Von er á kólnandi veðri næstu daga. Skjáskot/Veðurstofa íslands
Búast má við sólríkum og hlýjum degi norðaustan- og austanlands í dag, þó heldur svalara verði þar en í gær. Þá víkur blíðviðrið undanfarna daga fyrir köldu lofti næstu daga. „Best er að njóta veðurblíðunnar því nú sér fyrir endann á hlýju sunnanáttunum sem hafa verið hjá okkur síðustu daga,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Sunnan- og vestantil á landinu er skúraloft allsráðandi sem nær hámarki seinnipartinn í dag en lægir síðan og styttir upp í kvöld og nótt. Á morgun, á páskadag, verður fremur hæg austlæg átt á landinu og skýjað og þurrt að mestu, en heldur bjartara verður yfir norðausturlandi. Hiti verður 3 til 9 stig yfir daginn, hlýjast vestanlands. Vaxandi norðaustanátt þegar líður á morgundaginn og allhvass vindur með samfelldri rigningu austantil á landinu annað kvöld, en snjókomu til fjalla og kólnandi veðri. Norðaustlæg átt á mánudag og fremur svalt í veðri. Dálítil él norðantil á landinu framan af degi, en lengst af úrkomulítið fyrir sunnan.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag (annar í páskum):Norðustlæg átt, 5-10 m/s og skýjað með köflum, en stöku él NA-lands. Austan 8-15 og fer að rigna S-lands um kvöldið. Hiti yfirleitt 2 til 7 stig að deginum. Á þriðjudag:Austlæg átt, 8-15 m/s og slydda eða snjókoma N-til og hiti nálægt frostmarki, en rigning í öðrum landshlutum og hiti 2 til 7 stig. Á miðvikudag:Suðlæg og síðar austlæg átt með rigningu og hlýnadi veður, en hvessir og bætir í úrkomu við S-lands um kvöldið. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti) og föstudag:Ákveðin austanátt og víða rigning, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast V-lands.
Veður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira