Þórir og félagar áttu frumlegustu fögnin og komust í Shaqtin' A Fool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2019 06:00 Þórir Þorbjarnarson fagnar með liðsfélaga sínum hjá Nebraska Cornhuskers. Getty/Jonathan Daniel
Þórir Þorbjarnarson er að spila með körfuboltaliði Nebraska Cornhuskers í bandaríska háskólakörfuboltanum og hann og liðsfélagarnir settu sinn svip á uppgjör Shaquille O´Neal á lokaspretti háskólakörfubolta tímabilsins. Þórir og félagar komust ekki í Marsfárið í ár en voru með í NIT keppninni þar sem þeir duttu út fyrir TCU í annarri umferð. Shaquille O´Neal tók saman „Shaqtin' A Fool: March Madness“ um bandaríska háskólaboltann. Shaqtin' A Fool er vanalega að einblína á fyndin tilþrif og klaufaskap NBA-leikmanna. Nú var aftur á móti komið að háskólakörfuboltanum. Þórir og félagar áttu þar frumlegustu fagnaðarlætin og komust í Shaqtin' A Fool. Þar sjást þeir meðal annars bjóða upp á bobsleðafagn eftir eina körfu félaga sinna. Þórir er annar í röðinni en það má smá fagnið þeirra eftir um 45 sekúndur. Bobsleðfagnið var ekki það eina sem kom Nebraska Cornhuskers upp í 2. sætið á samantekt Shaquille O´Neal því þar má sjá Þóri og strákana einnig bjóða upp á glímufagn, á lyftingasalsfagn, gefa liðsfélaga sínum tíu fyrir troðslu og bera síðan einn út af eftir þykjustu yfirlið. Það er ljós á þessu að það er greinilega mjög gaman að vera hluti af þessu Nebraska körfuboltaliði. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var núna á sínu öðru ári í skólanum en hann fór út sem þrefaldur Íslandsmeistari með KR. Þórir var með 2,0 stig og 2,1 frákast að meðaltali á 12,3 mínútum á þessu öðru ári sínu. Hér fyrir neðan má sjá „Shaqtin' A Fool: March Madness“ og við stillum hana þannig að myndbandið hefst á samantektinni á tilþrifum Þóris og félaga á hliðarlínunni.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira