Benedikt: Kom mér á óvart að vera boðið starfið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. mars 2019 13:30 Benedikt og Hannes formaður kampakátir. vísir/vilhelm
Benedikt Guðmundsson var í dag ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins í körfubolta til næstu fjögurra ára. Benedikt tók sér drjúgan tíma til þess að íhuga málið áður en hann samþykkti að taka við liðinu. „Ég veit ekki hvað er lengi og stutt í svona þar sem þetta er í fyrsta skipti sem ég tek slíkt starf að mér. Ég hugsaði þetta í tæpar tvær vikur,“ segir Benedikt en hvað heillaði hann við starfið? „Ég held að þetta sé spennandi áskorun. Nú er ég aðeins búinn að prófa mig áfram í kvennadeildinni. Ég var ekki að hugsa um þetta starf og það kom mér á óvart er það stóð mér til boða. Ég fann strax að þetta var eitthvað sem heillaði mig. Ég þurfti bara aðeins að melta þetta.“ Benedikt samþykkti að taka við liðinu í gærkvöldi og var svo boðað beint til blaðamannafundar í morgun. Þjálfarinn hefur því ekki haft mikinn tíma til þess að setja sér einhver markmið. „Ég vil sjá kvennaboltann taka skref fram á við. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Ég held að það sé kostur að ég sé ekki með mikla reynslu í þjálfun hjá konunum. Það er ákveðinn núllpunktur og þarna kemur þjálfari sem er ekki endilega með fyrirfram mótaðar skoðanir á leikmönnum og öðru. Ég reyni að gera þetta á minn hátt og vonandi vilja sem flestar taka þátt í þessum slag með mér.“ Landsliðsþjálfaranum líst mjög vel á efniviðinn sem er til staðar en hans fyrsta verkefni með liðið verða Smáþjóðaleikar í maí. „Við eigum margar efnilegar stelpur og ég ásamt KKÍ erum að horfa til framtíðar með fjögurra ára samningi. Það er samt engin of ung eða of gömul til þess að spila með liðinu. Það er fín blanda til staðar í dag og sem betur fer eru stelpurnar farnar að spila lengur en áður og jafnvel til fertugs.“
Körfubolti Tengdar fréttir Benedikt tekur við kvennalandsliðinu Benedikt Guðmundsson, núverandi þjálfari KR í Domino´s deild kvenna, er tekinn við íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta og mun stýra liðinu í fyrsta sinn á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi í maílok. 1. mars 2019 11:45 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Benedikt tekur við kvennalandsliðinu Benedikt Guðmundsson, núverandi þjálfari KR í Domino´s deild kvenna, er tekinn við íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta og mun stýra liðinu í fyrsta sinn á Smáþjóðaleikunum í Svartfjallalandi í maílok. 1. mars 2019 11:45