Fjölnismenn voru einu marki yfir er Valsmenn héldu í síðustu sóknina. Þar féll Magnús Óli Magnússon, leikmaður Vals, í gólfið eftir að hafa sótt að marki Fjölnis.
Dómarar leiksins, Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson, nýttu sér tæknina og ákvaðu að skoða atvikið í sjónvarpinu. VAR, myndbandsaðstoðardómari, í Höllinni.
Þar komust þeir að þeirri niðurstöðu að senda Arnar Máni Rúnarsson útaf með rautt spjald og Valur fékk vítakast. Úr því skoraði Anton Rúnarsson og jafnaði metin. Því þurfti að framlengja.
Í framlengingunni reyndist Olís-deildarlið Vals betra og er því komið í úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni á morgun.
Mikil umræða skapaðist um dóminn á Twitter og má sjá brot af umræðunni hér að neðan.
Þvílík og önnur eins skömm #handbolti
— Ásgeir Jónsson (@sonurjons) March 8, 2019
Vandræðalegasta VARið er í handbolta. "Hmm... Ég segi bara, rautt spjald?"
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) March 8, 2019
HAHAHA viðurkenni eg held með Val í þessum leik en víti er þvæla
— Sigurður Ólafsson (@siggiolafss) March 8, 2019
NEI NEI NEI - Fjölnir rændir
— Gunnar Steinn (@SteinnJonsson) March 8, 2019
Svona dómgæsla verður bara til þess að fólk missi áhuga á íþróttinni. Gæinn leitaði og leitaði til hann gæti selt sjálfum sér að gefa rautt. Hinn dómarinn ekki sammála einu sinni. Ef Valur vinnur á endanum þá er það dómaranum að þakka.
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) March 8, 2019
Ég sem hélt að Handbolti væri leikur með snertingum
— HrafnkellFreyr (@hrafnkellfreyr) March 8, 2019
Valsmenn sluppu heldur betur með skrekkinn. Fengu víti á silfurfati og náðu að tryggja sér framlengingu með marki úr vítakasti. Rautt og víti algör þvæludómur.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) March 8, 2019
Vel dæmdur leikur sem endar svo á algjörlega glórulausu bulli sem er að bjarga Val, þjófnaður #handbolti
— Birgir H. Stefánsson (@BHStefansson) March 8, 2019
Hvar í sögubókunum er þessi dómur yfir verstu dóma allra tíma? Þetta getur ekki verið rautt spjald. Fjölnismenn rændir - væri til í að fá Bjarka til að útskýra þennan dóm, Gunnar var ekki sammála og það sást alveg. Hafði ekki pung í að segja nei við Bjarka #handbolti #handkastið
— Guðmundur Sigfússon (@Gummi_10) March 8, 2019
Var að detta inn í e-ð VAR dæmi í handboltanum - og þvílíka ruglið að dæma víti og rautt á Fjölni gegn Val. #handbolti
— Sigurður Elvar Þórólfsson (@sigelvar) March 8, 2019
Seinni leikur kvöldsins óþarfi og á laugardag það er búið að ákveða sigurvegara bikarsins í ár hammóvalur og hsi skammarlegt #handbolti
— Óskar Guðmundsson (@OskarGumundsson) March 8, 2019
VAR þetta versti vídeó dómurinn hingað til. Lítið brot miklar afleiðingar fyrir gula liðið #handbolti
— Jón Andri Helgason (@jonandri30) March 8, 2019
Er ekki VAR notað til þess að koma veg fyrir svona dóma? úffff...... #handbolti
— Hermann Gumm (@hemmigumm) March 8, 2019
Hvaða VAR bíó er þetta? Eru Bjarki og Gunnar Óli að sýna þjóðinni að þeir séu ekki hæfir til að dæma einn handboltaleik án þess að horfa á endursýningar hvað eftir annað? #Handkastið
— Arnar Daði Arnarsson (@arnardadi) March 8, 2019
Réttur dómur held ég. En þetta er alltof mikil refsing í svona leik. Fá á sig víti, mann útaf með rautt OG að vera svo 1/5 af framlengingunni einum færri. Annað hvort að breyta rauða í tvær eða núlla út refsitímann fyrir framlengingu.
— Árni Stefán (@arnistefan) March 8, 2019
Einu sinni skildi ég alveg smá hvernig reglurnar eru í handbolta. Það voru fínir tímar.
— Kari Freyr Doddason (@Doddason) March 8, 2019
Vorkenni Fjölni. Áttu skilið úrslitaleik en voru einfaldlega rændir því. #handbolti
— Rikki G (@RikkiGje) March 8, 2019