Meinið í samfélaginu er lág laun og langur vinnudagur Örn Þorvaldsson skrifar 31. janúar 2019 07:00 Ég byrjaði að vinna sem rafvirki 16 ára árið 1961 og vann minnst 10 stundir á dag, oft fram á kvöld og um helgar.Unnið í Danmörku fyrir 50 árum Ég bjó í Danmörku 1969 – 1972, vann þar aðeins 8 stundir á dag, 40 stundir á viku. Ég hafði mannsæmandi laun og naut þess að vinna vel þennan stutta vinnudag. Á þessum þremur árum voru það aðeins 2 mánuðir sem ég vann 10 stundir. Fagfélag danskra rafvirkja, Dansk elektriker forbund, gaf fyrirtækinu leyfi fyrir tveggja tíma yfirvinnu þar sem mikið lá við og opna átti Tívolí eftir tvo mánuði. Stéttarfélagið gaf ekki leyfi fyrir lengri vinnutíma en 8 stundum nema sérstaklega stæði á, því að þeirra sögn værum við þá að taka vinnu frá öðrum rafvirkjum. Endurmenntun var góð og fór fram á vinnutíma. Stuttur vinnudagur og góðar almenningssamgöngur voru þess valdandi að maður naut lífsins, var með bókatösku á öxlinni, hugsaði og las. Við konan mín unnum bæði og leigðum litla gamla íbúð fyrir sanngjarnt verð og höfðum ekki þörf fyrir bíl. Við fórum árlega í utanlandsferðir, keyptum nýtt innbú, heimilistæki og fatnað, sem við fluttum með okkur heim auk þess að hafa efni á nýjum bíl. Fyrir um 15 árum síðan sendi ég Rafiðnaðarsambandinu póst og spurði af hverju sambandið héldi ekki á lofti kröfunni um mannsæmandi laun fyrir 8 stunda vinnudag. Rafiðnaðarsambandið svaraði, að það væri hætt að gera þessa kröfu því rafvirkjar vildu vinna 9 – 10 stundir á dag! Á sama tíma spurði ég formann ASÍ þessarar sömu spurningar. Viðkomandi svaraði því, að ég ætti að sjá það að ef allir hefðu mannsæmandi laun fyrir 8 tíma vinnudag þá færi verðbólgan af stað! Ég sendi einnig Vinstri grænum þessa merkilegu hugmynd mína um mannsæmandi laun fyrir 8 stunda vinnudag, sem ég hafði kynnst í Danmörku, en fékk engin svör. Álit mitt á vinnubrögðum verkalýðs- og stjórnmálaforustu fyrri tíma er að hún vilji hafa þetta svona, að fólk þurfi að vinna langan vinnudag til að geta framfleytt sér. Kröfur sem ættu að vera í forgangi 1. Að almenningur fái skilyrðislaust mannsæmandi laun fyrir 8 tíma vinnudag. Útborguð laun fari aldrei undir framfærsluviðmið og verði framvegis verðtryggð (eins og laun sjórnmálamanna). Að laun fyrir tveggja tíma yfirvinnu (sem tíðkast hefur) gangi inn í dagvinnulaunin og að yfirvinna verði bönnuð nema í undantekningartilfellum. 2. Að ekki verði greiddur skattur af launum undir framfærsluviðmiði. 3. Að skerpt verði á um að menntun verði metin til launa. 4. Að stuðningur við fyrstu íbúðakaup komi til. 5. Að jafnlaunavottun fyrirtækja í landinu verði hraðað og henni verði fulllokið eigi síðar en í lok árs 2020, og verði viðhaldið á tveggja ára fresti. Ég tel að í þessum samningum eigi áhersla að vera á launajöfnuð karla og kvenna og tryggja réttindi erlends vinnuafls. Að þeir sem eru undir framfærsluviðmiði í útborguðum launum þ. e. verkafólk, ellilífeyris- og bótaþegar, fái laun sín leiðrétt svo framværsluviðmiði verði náð, en laun alþingismanna voru leiðrétt um 40% (höfðu dregist aftur úr). Ég tel að meðallaun og laun þar yfir megi/eigi að vera án launahækkana að þessu sinni! Ég tel að áður en farið er að tala um 35 stunda vinnuviku, eigi að koma raunveruleg 40 stunda vinnuvika fyrir alla, þar sem að þorri fólks, ekki síst erlent verkafólk, vinnur nú mun meira og jafnvel á 2 vinnustöðum! Mannsæmandi laun fyrir 40 stunda vinnuviku yrðu til mikilla bóta fyrir samfélagið, fjölskyldur og fyrirtæki. Ég tel að stjórnmálamenn (yfirstétt þessa lands), þeir sem hafa margföld laun verkafólks, skilji tæplega hvað fólk er að tala um með kröfum sínum um mannsæmandi laun fyrir 40 stunda vinnuviku. Það eru svo margir möguleikar til að njóta lífsins á Íslandi bara ef almenningur hefði tíma og fjárhagsstöðu til þess, en á því eigum við rétt! Almenningur vill jöfnuð, lærum af þessari litlu 50 ára gömlu sögu sem segir að dvöl mín í Danmörku sé einu árin á minni starfsævi sem ég hef aðeins unnið 8 tíma á dag 40 stundir á viku!Höfundur er rafvirki Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Kjaramál Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar