Sádar sagði vinna að þróun langdrægra eldflauga Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2019 22:40 Herstöðin sem um ræðir. AP/Planet Labs
Sérfræðingar segja gervinhnattamyndir af afskekktri herstöð í Sádi-Arabíu sýna fram á að ríkið sé að vinna að þróun langdrægra eldflauga. Þrátt fyrir að yfirvöld þar hafi margsinnis gagnrýnt Írani fyrir að vinna að þróun eldflauga. Óttast er að ríkið sé sömuleiðis að vinna að þróun kjarnorkuvopna, samhliða þróun eldflauga til að bera slík vopn. Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, sagði í fyrra að konungsríkið myndi ekki hika við að þróa kjarnorkuvopn ef andstæðingar þeirra í Íran gerðu það. Íranar hafa ávallt haldið því fram að kjarnorkutilraunir þeirra snúi ekki að þróun sprengja en forsvarsmenn margra ríkja og Sádi-Arabíu hafa lengi efast um það. Þá hefur eldflaugum reglulega verið skotið að Sádi-Arabíu frá Jemen. Sameinuðu þjóðirnar, Bandaríkin og önnur ríki segja Írana hafa útvegað uppreisnarmönnum Húta í Jemen slíkar eldflaugar. Þá segja sérfræðingar sem hafa skoðað áðurnefndar myndir að herstöðin og aðbúnaður þar líkist eldflaugasmiðjum Kína. Sádi-Arabía hefur keypt eldflaugar af Kína, samkvæmt AP fréttaveitunni, og hafa Kínverjar einnig selt Sádum annars konar vopn á undanförnum árum.Talsmaður Utanríkisráðuneytis Kína neitaði í fyrstu að tjá sig um málið við AP en sagði seinna meir að hann hefði engar upplýsingar um að Kína hefði hjálpað Sádi-Arabíu að byggja eldflaugastöð. Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa ekki viljað tjá sig um málið.
Kína Sádi-Arabía Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira