Lærði mjög mikið á þessu ári Hjörvar Ólafsson skrifar 28. desember 2018 13:00 Annie Mist, Katrín Tanja, Björgvin og Sara. fréttablaðið
Crossfit Það skiptust á skin og skúrir á árinu sem nú er að líða í aldanna skaut hjá Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur CrossFit-keppanda. Hún stóð sig vel á þeim mótum sem hún keppti á, en var fjarverandi í þó nokkurn tíma þar sem hún rifbeinsbrotnaði í tvígang á þessu ári. Henni fannst andlega erfitt að geta ekki æft af fullum krafti eins og hún er vön að gera, en þetta er í fyrsta skipti sem hún meiðist alvarlega eftir að hún fór að stunda CrossFit af fullri alvöru. „Þetta var mjög lærdómsríkt ár. Ég lenti í meiðslum í fyrsta skipti á ævinni og lærði að eiga við það. Nú stefni ég að því að koma sterkari til baka og ná fullum styrk á nýju ári. Það tók mjög mikið á andlega að geta ekki tekið þátt í þeim mótum sem ég missti af. Mig klæjaði í puttana og fæturna að komast aftur í fulla æfingu og að geta keppt,“ segir Sara í samtali við Fréttablaðið. „Ég hef aldrei verið góð í að hlusta á líkamann og stoppa þegar eitthvað er að. Þessi meiðsli kenndu mér það að ég þarf kannski að vera skynsamari á köflum og láta líkamann en ekki hjartað ráða för. Þarna átti ég reyndar engra annarra kosta völ en að hætta að æfa. Ég rifbeinsbrotnaði og var frá í töluverðan tíma vegna þess og það var svo mikið högg að brotna á sama stað aftur. Það var yndisleg tilfinning að geta byrjað að æfa aftur og algerlega frábært að vera kominn í gott stand þegar mótið í Dubai fór fram fyrr í þessum mánuði,“ segir hún um árið og þátttöku sína á Dubai CrossFit Championship. „Það er besta tilfinning í heimi að keppa á stærsta sviðinu og árangurinn í Dubai var framar vonum þegar tekið er mið af því hvernig undirbúningurinn var hjá mér. Ég fann ekkert fyrir meiðslunum, en ég var frekar stressuð og mér leið eins og þegar ég var að keppa í fyrsta skipti á erlendum vettvangi. Stressið gerði það að verkum að ég gerði nokkur klaufaleg mistök sem ég er ekki vön að gera og þau urðu mér að falli. Af þeim sökum náði ég ekki að berjast af alvöru um sigurinn, en ég er ánægð með frammistöðuna samt sem áður,“ segir þessi öfluga kona. „Næst á dagskrá er mót í Miami þar sem sæti á Heimsleikunum er í boði. Það verður gott að komast út í sólina og keppa við bestu aðstæður. Nú er bara markmiðið hjá mér að ná fyrri styrk og tryggja mig inn á Heimsleikana eins fljótt og mögulegt er. Eftir að hafa misst af nokkrum mótum vegna meiðsla á þessu ári er ég fyrir vikið enn spenntari fyrir þeim mótum sem fram undan eru,“ segir Sara. „Mér líst mjög vel á þetta nýja fyrirkomulag sem verður á Heimsleikunum í ár. Það eru fleiri keppnir og það virðist vera sem leikarnir sjálfir fari fram yfir lengri tíma. Við eigum fleiri möguleika á að komast í aðalkeppnina. Þá þarf maður að vera í góðu formi á lengri kafla frekar en að toppa bara á einhverjum einum eða tveimur fyrirfram gefnum tímapunktum. Mér líst bara vel á það. Það er líka algerlega frábært að ein undankeppnin fari fram hér á landi,“ segir hún um Reykjavík CrossFit Games sem haldið verður hér á landi 3.-5. maí. Þetta verður hálfgert déjà vu frá Íslandsmótunum í gamla daga. Þarna verður svipuð stemming þar sem stöðvarnar koma saman og hvetja sína keppendur og lið til dáða. Ég finn fyrir mikilli spennu frá CrossFit-samfélaginu að utan fyrir að koma hingað. Bæði fyrir að koma hingað til þess að keppa og sjá og upplifa íslenska náttúru. Víkingaþemað og það að Game of Thrones hafi verið tekið upp hérlendis er alls ekki að spilla fyrir þeirri spennu. Ég er persónulega mjög spennt fyrir þessu,“ segir hún enn fremur um það að undankeppni Heimsleikanna fari fram í fyrsta skipti á íslenskri grundu.
CrossFit Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Aston Villa - Manchester City | Missa gestirnir loksins stig? Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Dómur í Maradona-málinu fellur í desember Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi „Þetta er bara ólýsanlegt” Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Valsmenn með þriðja sigurinn í röð Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Sjá meira