Nýjar íbúðir minni og dýrari Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. desember 2018 09:04 Auglýst fermetraverð nýbygginga í október var 17 prósent hærra en í október 2017 en meðalfermetraverð annarra íbúða hækkaði um þrjú prósent á sama tímabili. vísir/vilhelm
Aukinn kraftur í hækkun ásetts verðs á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu undanfarna tólf mánuði skýrist fyrst og fremst af verðþróun nýbygginga. Þannig var auglýst fermetraverð nýbygginga í október 17 prósent hærra en í október 2017 en meðalfermetraverð annarra íbúða hækkaði um þrjú prósent á sama tímabili. Þá er meðalfermetraverð nýbygginga á höfuðborgarsvæðinu nú um 19 prósent hærra en annarra íbúða og hefur hefur þessi munur ekki verið meiri í rúm þrjú ár. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs um fasteignamarkaðinn. Þar segir einnig að verð í kaupsamningum um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað með nokkuð jöfnum takti undanfarið. Tólf mánaða hækkun vísitölu íbúðaverðs mælist nú 4,1 prósent. „Meiri kraftur hefur hins vegar verið í hækkun ásetts verðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum mánuðum. Vísitala ásetts verðs, sem reiknuð er af hagdeild, hefur hækkað um 7,2% á undanförnu ári,“ segir í skýrslu Íbúðalánasjóðs. Þróunin í verði á nýbyggingum skýrist að hluta til af fjölgun minni íbúða í nýbyggingum. Meðalstærð íbúða í nýbyggingum hefur farið minnkandi að undanförnu en á tímabilinu 2015 til 2017 voru nýjar íbúðir að meðaltali um tíu fermetrum stærri en aðrar íbúðir. „[...] en nú er svo komið að auglýstar íbúðir í nýbyggingum eru ívið minni að meðaltali en aðrar auglýstar íbúðir,“ segir í skýrslu Íbúðalánasjóðs sem lesa má í heild sinni hér.
Húsnæðismál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira