Verður ekki refsað fyrir að fæða barn nauðgara síns Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. desember 2018 08:34 Imelda Cortez. EPA/RODRIGO SURA
Imelda Cortez, tvítug kona frá El Salvador sem átti fyrir höfði sér þungan fangelsisdóm vegna meints þungunarrofs, er nú laus úr haldi yfirvalda. Mál Cortez vakti mikla athygli í vetur en hún fæddi barn í apríl í fyrra. Barnið fæddist heilbrigt og á lífi en vegna þess að Cortez var með mikla verki og blæðingar tilkynnti læknir hana til lögreglu vegna gruns um að hún hefði reynt þungunarrof. Barnið feðraði sjötugur stúpfaðir hennar sem hafði misnotað hana frá 12 ára aldri. Þungunarrof er ólöglegt undir öllum kringumstæðum í El Salvador og var Cortez ákærð fyrir tilraun til morðs. Hún hafði verið í haldi lögreglu síðan í apríl en var látin laus í gær eftir að kviðdómur í El Salvador úrskurðaði að hún hefði ekki reynt að myrða barn sitt. Þá var hún jafnframt ekki fundin sek um frekari glæpi en hún hafði játað á sig vanrækslu á barni sínu til að reyna að komast hjá harðri refsingu. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar Cortez var sleppt úr haldi yfirvalda. Þá hefur stjúpfaðir hennar verið handtekinn og verður sóttur til saka.
El Salvador Mið-Ameríka Tengdar fréttir Á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi eftir að hún fæddi barn nauðgara síns Imelda Cortez, 20 ára gömul kona frá El Salvador, á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóms vegna meints þungunarrofs. 12. nóvember 2018 08:45 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Sjá meira
Á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi eftir að hún fæddi barn nauðgara síns Imelda Cortez, 20 ára gömul kona frá El Salvador, á yfir höfði sér tuttugu ára fangelsisdóms vegna meints þungunarrofs. 12. nóvember 2018 08:45