Þriðji Kanadamaðurinn í haldi í Kína Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2018 17:37 Sendiráð Kanada í Peking. AP/Andy Wong
Yfirvöld Kína eru sögð hafa handtekið þriðja Kanadamanninn á stuttum tíma. Handtökurnar koma allar í kjölfar þess að yfirvöld Kanada handtóku fjármálastjóra og dóttur stofnanda kínverska fyrirtækisins Huawei að beiðni Bandaríkjanna. Ekki liggur fyrir hver maðurinn, eða konan, er né hvers vegna hann var handtekinn. Áður höfðu Kínverjar sagt að hinir tveir hefðu verið handteknir vegna ógnar gegn öryggi Kína.Samkvæmt CBC í Kanada komust yfirvöld landsins að handtökunni í gær og þá í gegnum aðila sem þekkir þann sem var handtekinn. Yfirvöld Kanada hafa engin skilaboð fengið frá Kína vegna málsins og talsmaður Utanríkisráðuneytis Kína sagðist ekki hafa heyrt af handtökunni í dag.Hinir tveir sem hafa verið handteknir heita Michael Spavor og Michael Kovrig.Sjá einnig: Tveir Kanadamenn í haldi í KínaFyrri handtökurnar hafa verið reknar til þess að Meng Wanzhou var handtekin í Kanada í byrjun mánaðarins og standa nú yfir réttarhöld um hvort hún verði framseld til Bandaríkjanna. Nágrannar Kanada gruna hana um að hafa brotið gegn viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum sem beitt hefur verið gegn Íran. Kínverjar hafa gagnrýnt Kanadamenn harðlega í kjölfarið og meðal annars sakað þá um að brjóta á mannréttindum Meng.Samkvæmt National Post, sem sagði fyrst frá handtökunni, hafa embættismenn í Kanada ekki viljað tengja nýjustu handtökuna við deilur ríkjanna.
Íran Kanada Kína Norður-Ameríka Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Fleiri fréttir Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Sjá meira