Leikmaður helgarinnar er gulls ígildi fyrir Huddersfield Kristinn Páll Teitsson skrifar 26. nóvember 2018 07:45 Aaron Mooy fagnar öðru marka sinna. Vísir/Getty
Aaron Mooy reyndist hetja Huddersfield í óvæntum 2-0 sigri á Úlfunum á útivelli um helgina. Með sigrinum náði Huddersfield að lyfta sér upp frá neðsta sæti deildarinnar og í fjórtánda sætið þrátt fyrir að vera með markatölu upp á fjórtán mörk í mínus. Mooy kom Huddersfield yfir í upphafi leiks þegar hann afgreiddi fyrirgjöf Erik Durm snyrtilega í netið. Hann nýtti sér kæruleysislegan varnarleik miðjumanna Wolves og fékk nægt pláss til að athafna sig. Í síðari hálfleik þegar Úlfarnir voru farnir að gera harða atlögu að marki Huddersfield bætti hann við öðru marki sem gerði út um vonir Wolves úr aukaspyrnu af 25 metra færi. Hinn ástralski Mooy var í lykilhlutverki hjá Huddersfield í fyrra þegar liðinu tókst að bjarga sæti sínu og er hann lykillinn að því að Huddersfield nái að halda sæti sínu í deildinni. Huddersfield skorar ekki mörg mörk en mörkin frá Mooy hafa reynst gulls ígildi frá því að hann kom upp í úrvalsdeildina með liðinu því í öllum fjórum leikjunum sem Mooy hefur skorað í hefur Huddersfield unnið leikina. Hefur hann því skorað í fjórum af tíu sigurleikjum félagsins undanfarin tvö ár.
Birtist í Fréttablaðinu Enski boltinn Mest lesið Williams-systurnar gera aðra tilraun að endurkomu Sport Mun Mount verða lausnin fyrir Manchester United? Fótbolti Fimmtán ára strákur skotinn til bana í miðjum leik fyrir mistök Fótbolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Íslenski boltinn Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Golf Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? Fótbolti „Vorum miklu betri allan tímann“ Fótbolti Venni vann í Noregi en venst því ekki að vera Noregsmeistari Sport Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti Situr á botni deildarinnar eftir að hafa verið tekinn af velli Fótbolti Fleiri fréttir Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Sjá meira