Djúp lægð við stjórnvölinn næstu daga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. nóvember 2018 06:56 Gular viðvaranir eru í gildi fyrir nánast allt landið vegna austan og norðaustan storms og er vegfarendum bent á að fara varlega þar sem hviður geta farið upp í 25 til 35 metra á sekúndu þegar mest lætur. vísir/hanna
Djúp lægð sem er suðvestur af landinu mun stjórna veðrinu næstu daga að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru í gildi fyrir nánast allt landið vegna austan og norðaustan storms og er vegfarendum bent á að fara varlega þar sem hviður geta farið upp í 25 til 35 metra á sekúndu þegar mest lætur. Austan- og norðaustan áttin í dag verður þannig allhvöss eða hvöss í dag með tilheyrandi stormi víða sunnan og vestan til á landinu. Þá er spáð dálítilli snjókomu norðanlands og rigningu syðri en það mun bæta í úrkomuna seinni partinn. „Hlýnandi, hiti 1 til 8 stig síðdegis en í kringum frostmark um landið norðanvert. Norðaustan 13-18 og rigning eða slydda á Vestfjörðum á morgun. Mun hægari og rigning í öðrum landshlutum, einkum á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast syðst. Austanátt með rigningu og mildu veðri á fimmtudag, en úrkomulítið síðdegis,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Gengur í austan og norðaustan 18-25 undir Eyjafjöllum og í Öræfum, síðar einnig NV-til, en víða 13-20 annars staðar. Dálítil snjókoma fyrir norðan og rigning syðra, en bætir í úrkomu seinni partinn. Hlýnandi, hiti 1 til 8 stig síðdegis en í kringum frostmark norðan heiða.Mun hægari og rigning með köflum á morgun, einkum á Austfjörðum og SA-landi, en allhvöss eða hvöss norðaustanátt með slyddu eða rigningu á Vestfjörðum. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst.Á miðvikudag:Norðaustan 13-18 m/s og slydda á Vestfjörðum fram eftir degi, annars talsvert hægari og rigning, en þurrt að kalla á SV- og V-landi síðdegis. Hiti 1 til 8 stig.Á fimmtudag:Austan 8-15 með rigningu S- og A-lands og einnig á Vestfjörðum. Hiti 3 til 8 stig.Á föstudag og laugardag:Austlæg átt, rigning og milt veður, en þurrt N- og V-lands.Á sunnudag:Norðaustanátt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt SV-lands. Hiti 2 til 7 stig.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira