Gul viðvörun og skilyrði varasöm vegfarendum Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. október 2018 07:29 Þónokkru hvassviðri er spáð um suðaustan- og austanvert landið. Vísir/Stefán
Hvasst verður á austurhelmingi landsins seinnipartinn í dag en annars staðar verður vindur þó aðeins hægari. Búist er við éljum, einkum norðaustantil en lægja mun í fyrramálið. Gul viðvörun Veðurstofu er í gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi þangað til á morgun en gert er ráð fyrir hviðum allt að 35 m/s. Veðurstofan segir að þessi skilyrði geti verið varasöm vegfarendum með aftanívagna og stórum bílum, sem taka á sig mikinn vind. Þá gerir vaxandi suðaustanátt á morgun, með hvassviðri og rigningu eða slyddu vestast á landinu annað kvöld. Veðrið færist síðan austur yfir landið aðfaranótt sunnudags. Þeim sem hyggja á útivist er því bent á að fylgjast vel með veðri þar sem það fer hratt versnandi á austanverðu landinu síðdegis í dag, og vestantil annað kvöld.Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á laugardag: Hæg breytileg átt, yfirleitt bjartviðri og frost 0 til 8 stig. Vaxandi sunnanátt seinnipartinn, þykknar upp og hlýnar, 13-18 m/s og fer að rigna S- og V-lands um kvöldið, en slydda eða snjókoma í uppsveitum. Annars hægara og þurrt. Á sunnudag: Sunnan 10-18 m/s með rigningu eða slyddu, en snjókomu til fjalla. Þurrt að kalla NA-til. Hiti 2 til 7 stig á láglendi. Snýst í hægari suðvestanátt með skúrum eða éljum undir kvöld og kólnar, fyrst V-lands. Á mánudag: Fremur hægir suðlægir vindar og stöku él, en strekkingur og rigning með A-ströndinni. Fremur svalt í veðri. Á þriðjudag og miðvikudag: Austlæg átt með rigningu eða slyddu á köflum, en yfirleitt úrkomuminna um landið vestanvert. Hiti 0 til 4 stig að deginum. Á fimmtudag: Útlit syrir norðlæga átt með ofankomu fyrir norðan, en hægari og bjartviðri sunnantil. Frost um mest allt land.
Veður Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira