Gæti skollið á stormur í kvöld og nótt Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. október 2018 09:02 Vindaspá Veðurstofunnar klukkan 4 næstu nótt lítur svona út. Mynd/Veðurstofa Íslands
Búast má við sunnan hvassviðri eða stormi, með slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri en snjókomu til fjalla í kvöld og nótt. Gert er ráð fyrir vindhviðum um 35 m/s í vindstrengum við fjöll norðvestantil á landinu í nótt. Á morgun snýst svo í hægari suðvestanátt með skúrum og kólnandi veðri, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Gul viðvörun Veðurstofu er í gildi á Breiðafirði og Miðhálendi þangað til á morgun. Í dag er spáð fremur hægri austlægri átt og skýjað verður að mestu en norðan 10-15 m/s austast og stöku él norðaustantil fram eftir morgni. Vaxandi sunnanátt vestantil á landinu síðdegis. Þá má búast við sunnan 15-23 m/s í nótt og slyddu eða rigningu. Hvassast verður um landið norðvestanvert en úrkomulítið á Austurlandi. Þá snýst í suðvestan 5-10 m/s með skúrum, og síðar éljum, á morgun en hvöss sunnanátt austantil fram á kvöld. Frost 1 til 6 stig en fer hlýnandi, hiti 2 til 7 stig á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á sunnudag: Sunnan 13-20 m/s og rigning eða slydda, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 2 til 7 stig á láglendi. Snýst í suðvestan 5-10 með skúrum, og síðar éljum, með deginum og kólnar, fyrst vestanlands. Á mánudag: Fremur hæg suðlæg átt og stöku él, en bjart með köflum um norðanvert lanidð. Heldur hvassara og dálítil rigning austast á landinu. Hiti kringum frostmark. Á þriðjudag: Austlæg átt, víða 8-13 m/s og rigning eða slydda með köflum, einkum suðaustanlands en hægari vindur um landið suðvestanvert. Hiti nálægt frostmarki. Á miðvikudag: Fremur hæg austlæg átt og skúrir eða él, en þurrt norðaustantil á landinu. Hiti kringum frostmark. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Útlit fyrir hvassa suðaustanátt með rigningu á láglendi og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Erlent „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Erlent Segir Kúbu næsta á eftir Íran Erlent Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Innlent Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Innlent Fleiri fréttir Óvenjulegt fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Sjá meira