Blikakonur verða Íslandsmeistarar með sigri í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2018 14:00 Blikakonur fagna hér mikilvægum sigri á Þór/KA á dögunum. Hetja Blika í þeim leik, Alexandra Jóhannsdóttir, er þarna fremst í flokki. Fréttablaðið/Ernir
Blikar geta haldið sigurhátíð í Smáranum í kvöld takist stelpunum þeirra að ná í stigin sem upp á vantar til að tryggja þeim meistaratitilinn. Kvennalið Breiðabliks getur tryggt sér sigur í Pepsideild kvenna í kvöld nái liðið að vinna Selfoss á Kópavogsvellinum. Þetta er leikur í 17. og næstsíðustu umferð Pepsideildar kvenna. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld en hann hefst klukkan 17.00. Breiðablik getur unnið sinn sautjánda Íslandsmeistaratitil en þetta yrði sá fyrsti síðan árið 2015 og „aðeins“ annar Íslandsmeistaratitill kvennaliðs félagsins á síðustu þrettán árum. Breiðablik náði fimm stiga forystu á Þór/KA með 3-0 sigri í innbyrðisleik liðanna á dögunum og nú eru aðeins sex stig eftir í pottinum. Sigur Blika í kvöld þýddi að Þór/KA gæti ekki lengur náð Blikum að stigum. Blikar hafa þegar unnið bikarkeppnina í sumar og geta Blikakonur því unnið tvöfalt. Blikar hafa ekki unnið tvöfalt síðan árið 2005 eða í þrettán ár. Breiðablik vann 1-0 sigur á Selfossi í fyrri leik liðanna og þá skoraði Selma Sól Magnúsdóttir sigurmarkið. Selma Sól er ekki með Blikum í kvöld því hún stundar nám við South Carolina háskólann í Columbiu. Heil umferð fer fram í Pepsideild kvenna í kvöld. Blikakonur yrðu einnig Íslandsmeistarar, sama hvernig fer hjá þeim á móti Selfossi, takist Þór/KA ekki að vinna Val. Þá er líka hálfgerður úrslitaleikur um fallið þegar KR tekur á móti Grindavík á Alvogenvellinum í Vesturbænum. KR-konur geta fellt Grindavíkurkonur með sigri. Vinni Grindavík leikinn þá fara liðin jöfn að stigum inn í lokaumferðina. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2.Leikir kvöldsins í 17. umferð Pepsideildar kvenna: Þórsvöllur 17.00 Þór/KA - Valur Alvogenvöllurinn 17.00 KR - Grindavík Kaplakrikavöllur 17.00 FH - Stjarnan Hásteinsvöllur 17.00 ÍBV - HK/Víkingur Kópavogsvöllur 17.00 Breiðablik - Selfoss
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira