Bráðavaktarleikkona skotin til bana Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. september 2018 10:52 Vanessa Marquez í hlutverki hjúkrunarfræðingsins Wendy Goldman. Vísir/Getty
Bandaríska leikkonan Vanessa Marquez, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem hjúkrunarfræðingurinn Wendy Goldman í Bráðavaktinni, ER, var skotin til bana af lögreglu í Kaliforníuríki á fimmtudag. Þetta hefur bandaríska fréttastofan CNN eftir lögreglu. Lögregla var kölluð að fjölbýlishúsi í borginni Pasadena síðdegis að staðartíma á fimmtudag. Hafði lögreglu borist tilkynning um að mögulega væri ekki allt með felldu í íbúð Marquez. Marquez var við slæma andlega heilsu þegar lögreglu bar að garði og er sögð hafa fengið ítrekuð flog. Þegar reynt var að hlúa að henni brást hún skyndilega ókvæða við og dró fram skammbyssu. Lögregla skaut Marquez þá til bana. Síðar kom í ljós að leikkonan bar ekki skammbyssu heldur loftriffil. Marquez fór með hlutverk hjúkrunarfræðingsins Wendy Goldman í þáttunum Bráðavaktinni árin 1994-1997. Þættirnir voru sýndir á Ríkissjónvarpinu um árabil og eru landsmönnum mörgum kunnugir. Þá lék Marquez einnig í hinum gríðarvinsælu Seinfeld-þáttum og kvikmyndinni Stand and Deliver.Í umfjölluninni um andlát Marquez hér að neðan má sjá nokkrar Bráðavaktarstiklur þar sem hjúkrunarfræðingurinn Goldman kemur fyrir.
Andlát Bandaríkin Bíó og sjónvarp Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira