Eiga að geta treyst því sem kemur fram í ritgerðum við HA Hersir Aron Ólafsson og Kjartan Kjartansson skrifa 30. júlí 2018 20:06
Rektor Háskólans á Akureyri segir að hægt eigi að vera að treysta því að það sem komi fram í BS-ritgerðum sem skrifaðar eru við skólann sé rétt en BS-ritgerðir séu þó ekki ritrýndar fræðigreinar og því þurfi að taka þeim með fyrirvara. Farið var með staðlausa stafi um tekjur ríkisins af virðisaukaskatti í nýrri BS-ritgerð nemanda í viðskiptafræði við skólann. Ranghermt var í ritgerð nemanda sem útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri nýlega að tekjur ríkisins af virðisaukaskatti væru hverfandi, aðeins 39-53 milljarðar króna á ári. Það rétta er þó að ríkið hafði 172 milljarða króna upp úr virðisaukaskatti árið 2014 og 192 milljarða árið 2015.Nokkur umræða hefur skapast um ritgerðina eftir að fréttastofa Stöðvar 2 fjallaði um niðurstöður hennar um helgina. Ýmsir hafa gagnrýnt Háskólanna á Akureyri fyrir að hafa lagt blessun sína yfir ritgerðina. Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, segir að oft séu BS-ritgerðir með einföldum forsendum til þess að þær séu viðráðanlegar. Þar af leiðandi séu þær ekki ritrýndar fræðigreinar. Hann viðurkennir þó að hægt eigi að vera að treysta því sem kemur fram í ritgerðum sem skrifaðar eru við skólann. „Hafi komið í ljós að um hafi verið að ræða rangfærslur eða um sé að ræða rangar forsendur þá höfum við tiltekin ferli sem deildin fer í annars vegar og svo skólinn hins vegar ef ástæða þykir til,“ segir Eyjólfur. Hann vísar ábyrgð á rýni ritgerða á leiðbeinendur. Það sé þeirra að tryggja að nemendur fari eftir þeim aðferðafræðum sem gilda í þeirra greinum. Helgi Gestsson, lektor við HA, var leiðbeinandi ritgerðarinnar þar sem farið var rangt með tölur um tekjur af virðisaukaskattinum. Hann vildi ekki veita Stöð 2 viðtal vegna hennar í dag. Hann sagði hans vegar við Stundina að hann hefði tekið við sem leiðbeinandi á miðju tímabili þegar vinna við hana var þegar hafin. Gleymst hafi að sækja upplýsingar um þær upphæðir sem tollstjóri sjái um að innheimta. Best hefði verið ef honum hefði tekist að benda nemandanum á að sækja sér þær upplýsingar.
Tengdar fréttir Virðisaukaskattur er stærsti tekjustofn ríkisins Niðurstöður lokaverkefnis við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri komu Þórólfi Matthíassyni verulega á óvart. Þær séu á skjön við raunveruleikann. 29. júlí 2018 14:32 „Virðisaukaskatturinn er bókstaflega engu að skila“ Virðisaukaskattur skilar sáralitlum tekjum í ríkissjóð að sögn viðskiptafræðings. Tímabært sé að endurskoða virðisaukaskattskerfið, undanþágur séu of margar og kerfið ógagnsætt. Æskilegra væri að taka upp 1,5 prósent flatan veltuskatt. 28. júlí 2018 21:00 Mest lesið Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Sjá meira
Virðisaukaskattur er stærsti tekjustofn ríkisins Niðurstöður lokaverkefnis við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri komu Þórólfi Matthíassyni verulega á óvart. Þær séu á skjön við raunveruleikann. 29. júlí 2018 14:32
„Virðisaukaskatturinn er bókstaflega engu að skila“ Virðisaukaskattur skilar sáralitlum tekjum í ríkissjóð að sögn viðskiptafræðings. Tímabært sé að endurskoða virðisaukaskattskerfið, undanþágur séu of margar og kerfið ógagnsætt. Æskilegra væri að taka upp 1,5 prósent flatan veltuskatt. 28. júlí 2018 21:00