Í tíu daga gæsluvarðhald vegna stunguárásar á Akranesi Birgir Olgeirsson skrifar 24. júlí 2018 10:57 Úrskurðurinn var kærður til Landsréttar. Vísir/Vilhelm
Maðurinn sem grunaður er að hafa stungið annan mann í hálsinn á Akranesi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. ágúst. Var maðurinn leiddur fyrir dómara í gær sem samþykkt kröfu lögreglustjórans um gæsluvarðhald. Hefur úrskurðurinn verið kærður til Landsréttar. Lögreglunni barst tilkynning rétt fyrir miðnætti síðastliðið sunnudagskvöld frá Sjúkrahúsinu á Akranesi vegna manns sem hafði leitað þangað og lét ófriðlega. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maðurinn á bak og burt. Á meðan lögreglumenn voru enn á vettvangi barst svo önnur tilkynning frá manni sem búsettur er nærri sjúkrahúsinu. Bað sá um aðstoð lögreglu þar sem verið væri að ráðast á hann. Við þetta bættist svo þriðja tilkynningin um að maður hefði verið stunginn með hnífi þarna. Sjúkraflutningamenn á Akranesi ásamt lögreglu fóru á vettvang. Í ljós kom að maður hafði verið stunginn í hálsinn með hníf og var hann fluttur með hraði á Sjúkrahúsið á Akranesi og eftir aðhlynningu þar og undirbúning var hann fluttur til Reykjavíkur á Landspítala. Sá sem fyrir stungunni varð, var sá hinn sami og látið hafði ófriðlega á sjúkrahúsinu skömmu áður. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var hætt kominn fyrst um sinn en í gær var greint frá því að hann væri ekki lengur í lífshættu. Mennirnir tveir eru báðir búsettir á þeim stað sem atvikið átti sér stað.
Tengdar fréttir Maðurinn sem var stunginn í hálsinn sagður úr lífshættu Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum árásarmanni síðar í dag. 23. júlí 2018 14:11 Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Fleiri fréttir „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Sjá meira
Maðurinn sem var stunginn í hálsinn sagður úr lífshættu Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir grunuðum árásarmanni síðar í dag. 23. júlí 2018 14:11