Fótbolti

Færeyskur framherji til FH

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Nýjasti liðsmaður FH
Nýjasti liðsmaður FH Heimasíða Midtjylland
Færeyski framherjinn Jakup Thomsen hefur verið lánaður til FH og mun leika með liðinu í Pepsi-deild karla út þessa leiktíð.

Hann kemur frá danska úrvalsdeildarliðinu Midtjylland en frá þessu er greint á heimasíðu danska liðsins í dag. Jakup er samningsbundinn Midtjylland til ársins 2022 en hann var á láni hjá dönsku B-deildarliði á síðustu leiktíð.

Jakup er 20 ára gamall og hefur leikið með U21 árs landsliði Færeyja undanfarin ár. Hjá FH hittir hann fyrir tvo landa sína, þá Gunnar Nielsen og Brand Olsen.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar þann 15.júlí næstkomandi og þá verður Jakup löglegur með FH.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×