Heppnin með Svíum í sigurmarkinu en sigur Svía var sanngjarn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2018 16:00 Emil Forsberg fagnar. Vísir/Getty Emil Forsberg tryggði Svíum 1-0 sigur á Sviss í sextán liða úrslitum HM í fótbolta í Rússlandi og um leið sæti í átta liða úrslitum þar sem liðið mætir annaðhvort Englandi eða Kólumbíu. Svíar halda upp heiðri Norðurlanda á HM 2018 og eru komnir áfram í átta liða úrslit í fyrsta sinn síðan á HM í Bandaríkjunum 1994. Sænska liðið sem fór alla leið fyrir 24 árum var mikið sóknarlið sem var markahæsta liðið á HM 1994 en að þessu sinni fara Svíarnir áfram á traustum varnarleik. Emil Forsberg hafði heppnina með sér í sigurmarkinu en átti það kannski inni því áður hafði hann reynt þrettán skot á þessu heimsmeistaramóti án þess að skora.Final #SWE 1 - 0 #SUI#SWE advances to its 1st #WorldCup quarterfinal since 1994#SUI has been eliminated in each of its four Round of 16 appearances at the #WorldCup, has not reached the quarterfinals since 1954 (when it hosted the tournament) pic.twitter.com/mJGxgixi60 — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) July 3, 2018 Sænska liðið átti líka skilið að skora mark þar sem liðið fékk mun hættulegri færi en Svisslendingar í þessum leik. Sænska landsliðið leggur grunninn að árangri sínum með frábærum varnarleik og sterkri liðsheild. Fyrir vikið er liðið komið alla leið í átta liða úrslit á HM þrátt fyrir að vera nánast stjörnulaust lið. Í sigurmarkinu gerði Emil Forsberg mjög vel að gabba varnarmann fyrir framan teiginn og koma sér í skotið. Skotið var ekki sérstakt en skaust af varnarmanni óverjandi upp í hornið. Skömmu síðar bjargaði Emil Forsberg síðan á marklínu í einu af fáum góðu færum Svisslendinga í leiknum. Hann var því hetja Svía í leiknum.14 - Emil Forsberg's opener was his first goal for Sweden at the World Cup, with what was his 14th shot (inc. blocks) of the 2018 tournament. Arrival. #SWESUI#SWE#WorldCuppic.twitter.com/xeiTTiSnZJ — OptaJoe (@OptaJoe) July 3, 2018 HM 2018 í Rússlandi