ÍA á toppinn eftir að HK missteig sig í Breiðholtinu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 5. júlí 2018 21:25 Úr leik ÍR og HK síðasta sumar vísir/eyþór
Jöfnunarmark í uppbótartíma tryggði HK stig gegn ÍR í Inkasso deild karla. ÍA endurheimti toppsætið með sigri á Selfyssingum. Njarðvík og Víkingur Ólafsvík skildu jöfn suður með sjó. HK hafði enn ekki tapað leik í deildinni og fyrirfram hefðu nær allir giskað á öruggan sigur gegn liði ÍR sem situr í fallsæti. Sú varð hins vegar ekki raunin. Markalaust var í fyrri hálfleik en snemma í þeim seinni skoraði Már Viðarsson glæsimark eftir mistök í vörn HK. Gestirnir úr Kópavogi fengu upplagt tækifæri til þess að jafna á 62. mínútu en Helgi Freyr Þorsteinsson varði víti frá Bjarna Gunnarssyni. Allt leit út fyrir að ÍR væri að sigla gríðarstórum sigri en seint í uppbótartíma skoruðu gestirnir jöfnunarmarkið upp úr klafsi í teignum eftir röð hornspyrna. Úrslitin í Breiðholtinu þýddu að ÍA fór aftur á topp deildarinnar með sigri á Selfyssingum á Akranesi. Arnór Snær Guðmundsson skoraði bæði mörk Skagamanna undir lok fyrri hálfleiks. Það fyrsta kom á 38. mínútu upp úr aukaspyrnu Alberts Hafsteinssonar. Hann bætti svo við eftir klafs í teignum upp úr hornspyrnu. Víkingur Ólafsvík fór upp í þriðja sætið, upp fyrir Þór á markatölu, með jafntefli í Njarðvík. Kwame Wuee kom Víkingum yfir eftir frábæra sendingu Sasha Litwin inn fyrir vörn Njarðvíkinga. Heimamenn voru þó fljótir að svara, nýttu sér háa stöðu Víkinga á vellinum, Luka Jagacic átti stungusendingu inn á Kenneth Hogg sem komst inn fyrir vörn Víkings og skoraði. Fleiri urðu mörkin ekki og liðin deildu með sér stigunum. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira