Blikar völtuðu yfir ÍR á leið sinni í undanúrslitin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 30. júní 2018 16:12
Breiðablik var síðasta liðið til þess að tryggja sig í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna. Blikar gerðu góða ferð í Breiðholtið þar sem þær unnu stórsigur á ÍR. Eftir góðar fyrstu tuttugu mínúturnar brustu flóðgáttirnar og ÍR sá aldrei til sólar. Alexandra Jóhannsdóttir gerði fyrsta markið eftir stoðsendingu Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur. Eyjakonan var svo sjálf mætt mínútu síðar og skilaði boltanum í netið eftir frábæra sendingu frá Ástu Eir Árnadóttur. Alexandra bætti sínu öðru marki við, og þriðja marki Blika á sex mínútna kafla, með skalla eftir sendingu frá Ástu Eir. Landsliðskonan Selma Sól Magnúsdóttir bætti fjórða markinu við áður en hálfleikurinn var úti með frábæru skoti fyrir utan teig sem Eva Ýr Helgadóttir var með fingurna í en náði ekki að verja. Seinni hálfleikurinn byrjaði hræðilega fyrir heimakonur sem fengu mark í andlitið strax á annari mínútu. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði örugglega eftir aukaspyrnu inn á teiginn. Selma Sól bætti við sínu öðru marki á 64. mínútu með skoti sem fór af varnarmanni og í markið. Guðrún Arnardóttir, sem er nýkomin aftur til Blika úr háskólaboltanum í Bandaríkjanum, skoraði sjöunda markið eftir undirbúning frá Selmu og Agla María Albertsdóttir negldi síðasta naglann í uppbótartíma. Mjög öruggur 8-0 sigur Blika sem fara í undanúrslit. ÍR er úr leik. Í pottinum þegar dregið verður til undanúrslita verða: Fylkir, Valur, Stjarnan og Breiðablik. Upplýsingar um markaskorara og úrslit eru fengnar frá Fótbolta.net.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira