Fylkir sló bikarmeistarana úr leik og spilar til undanúrslita Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. júní 2018 19:30 Fylkiskonur féllu úr efstu deild síðasta haust vísir
Inkassodeildar lið Fylkis sló út bikarmeistara ÍBV í 8-liða úrlsitum Mjólkurbikars kvenna í Árbænum í kvöld. Marija Radojicic skoraði sigurmarkið á síðustu mínútum leiksins. Fylkir komst óvænt yfir strax á 14. mínútu leiksins með marki frá Thelmu Lóu Hermannsdóttur sem slapp ein inn fyrir vörn ÍBV. Bikarmeistararnir svöruðu áður en flautað var til hálfleiks, Shameeka Fishley skoraði eftir hornspyrnu. Minnstu munaði að Fylkir kæmist yfir strax í upphafi seinni hálfleiks en Emily Armstrong varði skalla Mariju Radojicic í slánna. Það var hins vegar ÍBV sem skoraði næsta mark, það gerði Caroline van Slambrouck með skalla eftir aukaspyrnu Júlíönu Sveinsdóttur. ÍBV var þó ekki yfir lengi því eftir fjórar mínútur var Þórhildur Ólafsdóttir búin að jafna fyrir Fylki. Marija skoraði síðan sigurmarkið með þrumuskoti á fjærstöngina á 86. mínútu. Gleðin var þó ekki langlíf hjá markaskoraranum því Marija fékk sitt annað gula spjald á 89. mínútu og varð því að fara snemma í sturtu. ÍBV pressaði stíft að marki Fylkis síðustu mínúturnar en án árangurs, Fylkir sigraði með þremur mörkum gegn tveimur og spila Árbæingar til undanúrslita á meðan bikarmeistararnir eru úr leik. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Íslenski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira