Rússarnir brunuðu inn á HM í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2018 13:27 Dmitry Zhitnikov er öflugur leikmaður. Vísir/Getty
Rússland verður með á HM karla í handbolta í Þýskalandi og Danmörku í janúar 2019 eftir átta marka sigur í seinni umspilsleiknum sínum á móti Tékkum. Tékkar unnu fyrri leikinn 27-26 á heimavelli sínum fyrir fjórum dögum eftir að hafa unnið upp fimm marka forskot Rússa í seinni hálfleiknum. Í seinni leiknum í Perm í dag þá gaf rússneski björninn þeim engin grið. Rússar unnu leikinn 29-21 eftir að hafa verið 14-11 yfir í hálfleik. Rússneska liðið vann því umspilið samanlagt 55-48 og er fyrsta landsliðið til að komast upp úr því. Íslenska landsliðið vonast til að fylgja í kjölfarið annað kvöld. Dmitry Zhitnikov, liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Stefáns Rafns Sigurmannssonar hjá Pick Szeged, átti stórleik og skoraði átta mörk fyrir Rússa í leiknum. Reynsluboltinn Sergei Gorbok sem spilaði líka með Pick Szeged í vetur var síðan næstmarkahæstur með fimm mörk. Gorbok spilar með RK Vardar á næsta tímabili. Rússar eru því komnir inn á HM sem verður fyrsta stórmót þeirra í tvö ár því þeim mistókst að tryggja sér sæti á EM í Króatíu sem fram fór í janúar síðastliðnum.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira