Aron Einar í aðgerð á morgun: „Bjartsýnn fyrir HM“ Anton Ingi Leifsson skrifar 29. apríl 2018 17:40 Aron Einar vonast til að ná HM. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands og leikmaður Cardiff, mun undirgangast aðgerð á morgun vegna meiðsla sem hann hlaut í leik Cardiff og Hull í gærkvöldi en Aron Einar fór af velli eftir níu mínútna leik í gær. Aron missteig sig illa og féll til jarðar en er hann steig aftur upp þá fann hann smell í hnénu. „Ég fann stingandi sársauka og ég vissi strax að þetta var alvarlegt. Ég fór svo í myndatöku í morgun og fékk að vita hver staðan væri. Ökklinn er tognaður en svo er rifa í utanverðum liðþófa í hnénu,” sagði Aron Einar í tilkynningu sem var send fjölmiðlum síðdegis. Það styttist í HM og margir Íslendingar voru áhyggjufullir um stöðu Arons fyrir HM en einungis 47 dagar eru í fyrsta leik Íslands. Aron er bjartsýnn á að ná HM. „Ég fer í litla aðgerð annað kvöld og svo tekur bara við strangt endurhæfingarferli. Ég er í góðum höndum hérna í Wales,” sagði Aron og bætti við: „Það eru topplæknar og sjúkraþjálfarar sem meðhöndla mig og mér er sagt að ef allt gengur að óskum þá eigi ég góðan möguleika á að vera kominn í stand áður fyrsti leikurinn okkar verður flautaður á í Moskvu. Tíminn verður að leiða þetta í ljós en ég kýs að vera jákvæður og bjartsýnn.”
Fótbolti HM 2018 í Rússlandi Mest lesið „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ Körfubolti Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn Sport Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“ Fótbolti Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu Fótbolti Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Enski boltinn Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Enski boltinn Öskraði í miðju vítaskoti Körfubolti „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Enski boltinn „Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“ Handbolti Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið Handbolti Fleiri fréttir Rosický gæti snúið aftur til Arsenal Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal „Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“ Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt Newcastle með manninn sem Arsenal vantar Kaupir ný gleraugu á öryggisvörðinn og fær styttra leikbann Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Chelsea vill fá Guehi aftur Segir að Forest fari í titilbaráttu með sigri á Liverpool Son framlengir við Spurs West Ham búið að bjóða Potter starfið Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Jafntefli niðurstaðan í einum af leikjum ársins Amorim segir leikmenn sína hrædda Fá 21 árs Tékka í miðri markvarðakrísu Stórleikurinn fer fram þrátt fyrir snjóinn Sjá meira