Ósammála um orsök flugslyss Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. mars 2018 06:00 Björgunarmið leitaði að fólki sem hefði komist lífs af í braki vélarinnar eftir að eldur í því hafði verið slökktur. 22 fundust á lífi. Vísir/epa
Minnst 49 létust og 22 liggja sárir eftir að flugvél brotlenti á flugvellinum í Katmandú í gær. Flugfélaginu og yfirvöldum ber ekki saman um orsök slyssins. Vélin, sem gerð var út af bangladesska flugfélaginu US-Bangla, var á leið frá Dakka, höfuðborg Bangladess, til Katmandú. Um Bombardier Q400 vél var að ræða. Slíkar vélar eru Íslendingum að góðu kunnar enda í notkun hjá Air Iceland Connect. Að sögn flugfélagsins var flugumferðarstjórum í Nepal um að kenna en flugvélin kom til lendingar úr rangri stefnu. Upptökur af samskiptum milli flugmanna og flugturnsins benda til þess að einhver misskilningur hafi átt sér stað. „Vélin fékk leyfi til að lenda á suðurenda brautarinnar en hún lenti á norðurenda hennar,“ segir Sanjiv Gautam, yfirmaður nepalska flugumferðareftirlitsins. Forráðamenn félagsins segja aftur á móti að flugmennirnir hafi fengið fyrirmæli um að koma inn úr norðri. Forsætisráðherra Nepal, KP Sharma Oli, hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á slysinu.
Birtist í Fréttablaðinu Nepal Tengdar fréttir Að minnsta kosti 38 létust í flugslysi í Nepal Að því er fram kemur í frétt Guardian voru 67 farþegar um borð og fjórir í áhöfn vélarinnar. 12. mars 2018 11:39 Tala látinna hækkar eftir flugslysið í Nepal Tala látinna eftir flugslys á alþjóðaflugvellinum í Katmandú, höfuðborg Nepals, hefur hækkað upp í 50. 12. mars 2018 14:50 Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Erlent Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Erlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Spáir stillu og miklu svifryki um áramótin Veður Holtavörðuheiði enn lokuð Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Fleiri fréttir Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Sjá meira
Að minnsta kosti 38 létust í flugslysi í Nepal Að því er fram kemur í frétt Guardian voru 67 farþegar um borð og fjórir í áhöfn vélarinnar. 12. mars 2018 11:39
Tala látinna hækkar eftir flugslysið í Nepal Tala látinna eftir flugslys á alþjóðaflugvellinum í Katmandú, höfuðborg Nepals, hefur hækkað upp í 50. 12. mars 2018 14:50