Taugaeitur notað til að myrða hálfbróður Kim Jong-un Kjartan Kjartansson skrifar 7. mars 2018 10:57 Tvær konur réðust á Kim Jong-nam á flugvelli í Kúala Lúmpúr í fyrra. Hann lést skömmu síðar. Vísir/Getty
Bandarísk yfirvöld hafa komist að þeirri niðurstöðu að útsendarar Norður-Kóreustjórnar hafi notað taugaeitur til að ráða Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, af dögum í Malasíu í fyrra. Þau ætla að leggja frekari refsiaðgerðir á Norður-Kóreu vegna morðsins. Tvær konur réðust á Kim á flugvelli í Kúala Lúmpúr og mökuðu VX-taugaeitrinu í andlitið á honum. Þær bera því við að þær hafi talið sig vera að taka þátt í hrekk fyrir sjónvarpsstöð. Þær bíða nú réttarhalda vegna morðsins. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins segir að notkun Norður-Kóreumanna á efnavopnum, þvert á alþjóðlegar reglur, sýni fram á skeytingarleysi stjórnvalda í Pjongjang og að ekki megi umbera að þau hafi nokkurs konar kjarnorkuvopnaáætlun, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Norður-kóresk stjórnvöld hafa neitað því að þau beri ábyrgð á dauða Kim Jong-nam. Kim hafði meðal annars talað gegn fjölskylduveldinu í heimalandinu og skrifaði í bók árið 2012 að hann teldi að Kim Jong-un skorti leiðtogahæfileika.
Morðið á Kim Jong-nam Norður-Kórea Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sjá meira