Stund milli stríða í veðrinu Atli Ísleifsson skrifar 3. febrúar 2018 09:13 Búast má við vaxandi sunnanátt í kvöld. Mynd/ernir
Það er stund milli stríða í veðrinu í dag, frekar meinlaus suðvestanátt með smáéljum vestantil á landinu, en léttskýjað eystra. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á heimasíðu Veðurstofunnar. Þar segir að það verði vaxandi sunnanátt í kvöld, og 15 til 25 metrar á sekúndu í nótt, hvassast norðan heiða. „Víða rigning, jafnvel mikil úrkoma á Suður- og Vesturlandi á morgun með tilheyrandi vatnavöxtum. Hlýnar talsvert, en annað kvöld fer að kólna með slyddu eða snjókomu vestanlands,“ segir í færslunni. Loks segir að stormar séu algengir á Íslandi á þessum árstíma, til dæmis „gerði mikið fárviðri um allt vestanvert landið 3. febrúar 1991 með stórkostlegu tjóni.“Mikil rigning á morgun Talsverð eða mikil rigning verður sunnan og vestanlands á morgun, hiti yfirleitt 5 til 10 stig. Slydda eða snjókoma vestantil á landinu annað kvöld og kólnandi veður.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag: Suðvestan 10-18 m/s og él, en bjartviðri A-lands. Kólnandi, frost 3-10 stig um kvöldið. Á þriðjudag: Vestlæg átt og minnkandi éljagangur vestantil en bjart eystra. Frost 3 til 15 stig, kaldast í innsveitum norðaustantil. Snýst í vaxandi sunnanátt um kvöldið. Á miðvikudag: Hvöss sunnanátt og slydda eða rigning, síðan hægari suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri, en léttir til austanlands síðdegis. Á fimmtudag og föstudag: Suðvestanátt og él, en þurrt og bjart á Norðaustur- og Austurlandi. Frost um allt land, talsvert inn til landsins.
Veður Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Sjá meira