Púað á Trump í Davos Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2018 16:35 Trump sagði samband sitt við fjölmiðla alltaf hafa verið gott þegar hann var viðskiptamaður og hann hafi iðulega fengið jákvæða umfjöllun. Vísir/EPA
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er nú staddur á fundi Alþjóðaefnahagsráðsins í Davos í Sviss. Þar flutti hann ræðu og hvatti fjárfesta til að eyða peningum í Bandaríkjunum. Hann lofaði skattabreytingar Repúblikanaflokksins og sagði mikla uppsveiflu í Bandaríkjunum. „Bandaríkin fyrst þýðir ekki Bandaríkin ein,“ sagði Trump. Hann talaði um nauðsyn þess að gera sanngjarna viðskiptasamninga á milli ríkja.Forsetinn varði þó einnig tíma í Davos til að gagnrýna Demókrataflokkinn og sömuleiðis fjölmiðla. Við það voru viðbrögðin ef til vill ekki þau sömu og Trump er vanur þegar hann gagnrýnir fjölmiðla á kosningafundum sínum. Að þessu sinni var púað á Trump. Hann sagði samband sitt við fjölmiðla alltaf hafa verið gott þegar hann var viðskiptamaður og hann hafi iðulega fengið jákvæða umfjöllun. Það hafi þó breyst þegar hann hóf framboð sitt. Þá hafi hann áttað sig á því að blaðamenn væru „andstyggilegir“, „kvikindislegir“, „grimmir“ og „falskir“. Svo gaf hann í skyn, ranglega, að verið væri að slökkva á myndavélum fjölmiðla í salnum, eins og hann hefur svo oft gert áður.Samkvæmt frétt Huffington Post segja bandarískir blaðamenn að erlendir blaðamenn hafi púað á forsetann. Samkvæmt frétt AFP fréttaveitunnar hefur verið mikið um mótmæli í Davos vegna Donald Trump. Hann sagði hins vegar að „gífurlega stór hópur fólks“ hefði tekið honum fagnandi. Þar að auki sagði Trump, sem hefur aldrei farið á þessa ráðstefnu áður, að slíkur fjöldi hefði aldrei sést á ráðstefnunni áður.
Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira