Fjögur fyrir rétt í prófmálum vegna danska barnaklámsmálsins Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. janúar 2018 21:41 Flestir hinna grunuðu eiga að hafa deilt efninu nokkrum sinnum á meðan aðrir eiga að hafa gert það nokkuð hundruð sinnum. Vísir/Getty
Fjögur ungmenni munu mæta fyrir héraðsdóm í Lyngby í Danmörku í næstu viku í sérstökum prófmálum í hinu svokallaða danska barnaklámsmáli. Danska ríkisútvarpið greinir frá. Málið vakti mikla athygli þegar 1.004 ungmenni í Danmörku voru kærð af lögreglu vegna ólöglegrar dreifingar á barnaklámi. Þau eru sökuð um að hafa dreift tveimur kynferðislegum myndböndum og einni mynd af fólki sem var fimmtán ára þegar efnið var tekið. Dreifing efnisins á að hafa átt sér stað á spjallsvæði Facebook, Messenger. Pauline Popp-Madsen, saksóknari hjá lögreglunni á Norður-Sjálandi segir að mál fjögurra ungmenna hafi verið valin til þess að vera einskonar prófmál í málinu. Segir hún að sakargiftir í málunum sem valin hafi verið séu mjög mismunandi en það sé gert til þess að kanna afstöðu dómstóla til refsinga eftir sakargiftum. Gerir hún einnig ráð fyrir að lögreglan á Austur-Jótlandi muni hafa sama hátt á og því muni um níu til tíu prófmál vegna málsins fara fyrir dómstóla. Málið má rekja til þess að Facebook gerði bandarískum yfirvöldum viðvart um að verið væri að dreifa myndskeiðinu. Bandarísk yfirvöld létu Europol vita sem sendi málið til dönsku lögreglunnar.
Norðurlönd Tengdar fréttir 1.004 ungmenni kærð vegna dreifingar á barnaklámi í Danmörku Danskir fjölmiðlar segja þau hafa dreift tveimur kynferðislegum myndböndum og einni mynd af fólki sem var fimmtán ára þegar efnið var tekið. 15. janúar 2018 15:05 Mest lesið „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fólk dvelji ekki í herbergjum með glugga í átt að Eyrarfjalli Innlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Dæmdur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Innlent „Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál“ Innlent Forsætisráðherra segir málið hugarburð, Píratar vilja rannsókn Innlent Alræmdi túristahópurinn tók líka yfir pítsustað Innlent Fleiri fréttir Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Sjá meira
1.004 ungmenni kærð vegna dreifingar á barnaklámi í Danmörku Danskir fjölmiðlar segja þau hafa dreift tveimur kynferðislegum myndböndum og einni mynd af fólki sem var fimmtán ára þegar efnið var tekið. 15. janúar 2018 15:05