Vistvænir bílar slá í gegn hjá Íslendingum Finnur Thorlacius skrifar 11. janúar 2018 12:56 Mitsubishi Outlander PHEV mokaðist út í fyrra.
Mitsubishi Outlander PHEV er án efa bíll ársins 2017 hjá íslenskum neytendum, en þessi vistvæni tengiltvinnbíll sló öll sölumet á nýliðnu ári. Á afmælisári Mitsubishi fangaði hann hugi og hjörtu íslenskra ökumanna sem kunnu vel að meta umhverfsvænan kost á hagstæðu verði. Yfir 700 Íslendingar keyptu nýjan Mitsubishi Outlander á árinu. Árangur Heklu í sölu Mitsubishi Outlander PHEV endurspeglar áherslur fyrirtækisins á sölu og þjónustu vistvænna bíla. Fjárfesting í tæknibúnaði, þekkingu og þjálfun starfsfólks Heklu hefur auðveldað íslenskum bílkaupendum að eignast vistvænan bíl. Þessi stefna hefur einnig leitt til minni umsvifa fyrirtækisins á bílaleigumarkaði en þrátt fyrir það jukust heildarskráningar á fólks- og sendibílum hjá Heklu verulega milli ára. Sendibílum fjölgaði um 24% og fólksbílum um 17%. Markaðshlutdeild Heklu á sviði vistvænna bíla er nú 60% og ber Hekla höfuð og herðar yfir önnur bílaumboð hvað varðar fjölda vörumerkja og bíltegunda á þessu sviði. Hekla hefur einsett sér að setja enn ríkari kröfur um aukna ráðgjöf til viðskiptavina, meiri þjónustu fyrir hvern einstakan viðskiptavin og að auka úrval og upplýsa landsmenn enn frekar um vistvæna kosti á sviði bifreiða. Þessar áherslur hafa m.a. orðið til þess að vistvæni bílinn Mitsubishi Outlander PHEV varð mest seldi jepplingur á síðasta ári og næst mest seldi bíll ársins. Þessi mikla vakning á umhverfisvænum samgöngum á Íslandi hefur vakið athygli og leggur Volkswagen sitt af mörkum til að styðja enn fremur við þessa þróun. Með stuðningi Volkswagen býður Hekla nú frábær kjör á vistvænum bílum, sem dæmi er allt að 15% afsláttur á tengiltvinnbílnum Passat GTE. Árið hófst með krafti hjá Heklu um síðustu helgi með árlegri bílasýningu þegar þúsundir manna fjölmenntu á Laugaveginn. Til sýnis var allt það nýjasta og ferskasta frá Audi, Mitsubishi, Skoda og Volkswagen en aðalnúmer dagsins voru Skoda Karoq, Octavia RS245 og Octavia Scout ásamt Volkswagen T-Roc og Polo. Annie Mist mætti á staðinn og skoraði á gesti og veltibíllinn sívinsæli tók snúninginn með hátt í 500 farþega.
Umhverfismál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent