Rúnar Már skiptir um lið í Sviss Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. janúar 2018 16:22 Rúnar Már Sigurjónsson. Mynd/Heimasíða St. Gallen
Rúnar Már Sigurjónsson mun klára leiktíðina hjá St. Gallen í svissnesku úrvalsdeildinni en hann skrifaði í dag undir samning við félagið sem gildir til loka leiktíðarinnar. Rúnar Már kemur í skiptum fyrir annan leikmann, Gjelbrim Taipi, sem fer til Grashoppers á móti. Ekki er um lánssamning að ræða en möguleiki er á að samningur Rúnars verður framlengdur að leiktíðinni lokinni. Þetta kemur fram á heimasíðu St. Gallen. Forráðamenn St. Gallen eru ánægðir með að hafa klófest Rúnar og kalla hann „baráttuglaðan víking“. Enn fremur sé afar áhugavert fyrir félagið að hann sé leikmaður sem sé að berjast um sæti í HM-leikmannahópi Íslands. Rúnar kom til Sviss árið 2016 og var byrjunarliðsmaður hjá Grashoppers út október. Eftir það kom hann aðeins tvívegis við sögu hjá liðinu í deildinni sem varamaður en meiðsli settu einnig strik í reikninginn. Alls skoraði Rúnar þrettán mörk fyrir Grashoppers í 51 leik fyrir félagið og lagði upp tíu þar að auki. St. Gallen er í fjórða sæti svissnesku deildarinnar með 27 stig en Grashoppers er í því sjötta með 24.
Fótbolti Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjá meira