Sverrir, Sæbjörg og Björg komu Kára til bjargar nærri Rifi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2017 14:08 Frá björgunaraðgerðum í morgun. Landsbjörg/Þröstur Ingi Albertsson
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst laust fyrir klukkan átta í morgun beiðni um aðstoð frá fiskibátnum Kára SH-78. Hann var þá vélarvana um tvær sjómílur vestan við höfnina á Rifi, tæpa hálfa sjómílu frá landi. Tveir voru um borð í bátnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. Aðeins mínútu eftir að beiðnin um aðstoðina barst hafði Sverrir SH-126 samband við stjórnstöð. Hann var þá um fjórar sjómílur frá Kára og áætlaði að vera hjá honum skömmu síðar. Miðað við rek Kára leit út fyrir að hann ræki upp í fjöru við Gufuskála á fimmtán mínútum. Björgunaraðgerðin tók í heildina um eina og hálfa klukkustund.Landsbjörg/Þröstur Ingi AlbertssonÞyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út, svo og Lífsbjörg, björgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ. Klukkan 8:12 hafði skipstjórinn á Sverri samband við stjórnstöð, hann var þá kominn með Kára í tog og dró hann frá landi. Sæbjörg II, harðbotna slöngubátur björgunarsveitarinnar Lífsbjargar, kom skömmu síðar og tók við drættinum en það var svo björgunarskipið Björg sem dró Kára síðasta spottann að Rifi.Þegar ljóst var að allri hættu hafði verið bægt frá var aðstoð þyrlunnar afturkölluð. Laust fyrir klukkan hálftíu var Björg komin með Kára að bryggju.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira