Telja sykurskattinn hafa verið við lýði í of skamman tíma: Gengu á birgðir sem safnað hafði verið áður en skattheimtan hófst Birgir Olgeirsson skrifar 7. desember 2017 13:32 Rúmlega 34 prósent af viðbættum sykri í fæði landsmanna kemur úr sykruðum gos- og svaladrykkjum. Vísir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er opin fyrir því að taka upp svokallaðan sykurskatt að nýju og er embætti landlæknis og formaður lýðheilsufræðinga því sammála að hægt sé að stýra neyslu sykurs með skattlagningu. Vörugjöld á sykur og sætuefni voru hækkuð umtalsvert þann 1. mars árið 2013. 21 mánuði síðar, 1. janúar árið 2015 var þessi svokallaði sykurskattur afnuminn en Rannsóknarsetur verslunarinnar sagði hann ekki hafa minnkað neyslu en aukið tekjur ríkisins um tæpan milljarð.Niðurstaða rannsóknar Rannsóknarsetur sverslunarinnar var sú að erfitt væri að sjá að markmiðum hefði verið náð. Verðbreytingar flestra matvara sem voru skattlagðar voru það litlar að ólíklegt væri að neytendur hefðu upplifað hvata til a breyta neyslu sinni að nokkru magni vegna hennar.Gengu á birgðir sem safnað hafði verið fyrir skattheimtu Á stórum hluta þess tíma sem sykurskatturinn var við líði gengu framleiðendur og innflytjendur á birgðir sem safnað hafði verið áður en skattheimtan hófst. Á sama tíma lækkaði heimsmarkaðsverð sykurs töluvert og gengi krónunnar styrktist. Því væri hæpið að nægileg reynsla hefði gefist af sykurskattinum til að kveða upp endanlegan dóm um hvernig framleiðendur hefðu háttað viðbrögðum sínum til lengri tíma. Í niðurstöðu rannsóknarinnar kom fram að að erfitt væri að sjá að neytendur hefðu breytt kauphegðun sinni vegna skattheimtunnar. Verðvitund fyrir smávörum á borð við gos og sælgæti væri slæm, sérstaklega í verðbólguástandi, og sykurskatturinn því ólíklegri til að hafa tilætluð áhrif en til dæmis gjöld á tóbak, þar sem verðvitund væri betri og einstaka kaupákvarðanir varði oftast hærri fjárhæð.Neftóbak hækkaði umtalsvert í verði um síðustu áramót.vísir/gvaDró verulega úr munntóbaksneyslu við verðhækkun Embætti landlæknis hefur kannað hvaða áhrif hækkun tóbaksgjalds hefur á neyslu. Við áramótin 2012 til 2013 var tóbaksgjaldið hækkað um helming og sló það verulega á eftirspurn samkvæmt sölutölum. Var fulltrúi tóbaksvarna hjá embættinu sannfærður um að verðhækkanir dragi úr neyslu og sérstaklega hjá ungu fólki.Í janúar síðastliðnum sendi embætti Landlæknis frá sér álit þar sem lagt var til að stjórnvöld hækki álögur á gosdrykki þannig að þeir séu að minnsta kosti skattlagðir í samræmi við almenna skattheimtu í landinu og beri þá 24 prósenta virðisauka í stað 11. Einnig ætti að leggja vörugjöld á gosdrykki þannig að hækkunin nemi að minnsta kosti 20 prósentum í heildina.Fjármunir nýttir til að lækka skatta á hollum vörum Sagði í tilkynningu frá embættinu um máli að nýta mætti fjármunina til að lækka álögur á grænmeti og ávexti. Einnig ætti að eyrnamerkja hluta af álögunum fyrir starf á sviði heilsueflingar eins og gert er með gjöld á tóbak og áfengi. Þannig gætu stjórnvöld skapað aðstæður sem hvetja til heilbrigðari lifnaðarhátta og aukið jöfnuð til heilsu. Taldi embættið einnig mikilvægt að upplýsa almenning um heilsufarslegan ávinning af minni sykurneyslu og að fylgjast með og meta hvaða áhrif skattlagning hefur á neysluvenjur.Óhófleg neysla hér á landi Embættið sagði sykraða gos- og svaladrykki vega þyngst í sykurneyslu Íslendinga. Er neysla Íslendinga á slíkum drykkjum óhóflega mikil og mun meiri en á hinum Norðurlöndunum. Rúmlega 34 prósent af viðbættum sykri í fæði landsmanna kemur úr þessum vörum. Hlutfall feitra er sömuleiðis hæst á Íslandi í Norðurlandasamanburði og eykur sykurneyslan líkur á offitu, tannskemmdum og sykursýki af tegund 2. Dauðsföllum af völdum sykursýki 2 hefur fjölgað hratt en á síðustu fjórum árum hafa fimmtíu af völdum sjúkdómsins en á frá árinu 1996 til 2016 voru það 137 dauðsföll af völdum þess sjúkdóms.Lagt er til að skattar á sykraða gosdrykki og sælgæti verði hækkaðir. Fréttablaðið/ValliWHO segir skattahækun áhrifaríka leiðI skýrslu frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO kemur fram að vel skipulagðir skattar á matvæli, ásamt fleiri aðgerðum, geti verið áhrifarík leið til að bæta neysluvenjur. Skattlagning ætti að vera ein af forgangsaðgerðum stjórnvalda til að fyrirbyggja langvinna sjúkdóma. Í skýrslunni kom fram að mesti ávinningurinn sé af skatt á sykraða drykki og að hann þurfi að vera áþreifanlegur og hækka verð um að minnsta kosti 20 prósent. Þar segir einnig að skattheimta upp á 20 prósent geti dregið úr neyslu um 20 prósent.Minni neysla samhliða skattahækkunumRannsókn Daða Más Kristóferssonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands, og Laufeyjar Steingrímsdóttur, prófessors við Háskóla Íslands, sýndi fram á að fyrir hverja prósentuhækkun á gosdrykkjum minnkar neysla um 1 prósent. Í skýrslu WHO kom fram að sterkur vísindalegur grunnur sé fyrir því að 10 til 30 prósenta lækkun á álögum á hollum vörum eins og ávöxtum og grænmeti geti verið áhrifarík leið til að auka neyslu á þessum fæðutegundum.Stjórnvöld verða að bregðast viðFormaður Félags lýðheilsufræðinga, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, sagði í samtali við Fréttablaðið á dögunum að stjórnvöld yrðu að bregðast við. Hún benti á að félagið sem hún er í forsvari fyrir hefði lagt áherslu á að sykurskattur verði lagður á með breyttu sniði. Hann myndi leggjast á sykraða gosdrykki og sælgæti. Þegar sykurskatturinn var lagður á síðast lagðist hann einnig á ósykraða drykki, sem Sigríður sagði hafa verið eitt af vandamálunum, ásamt því að sykurskatturinn hefði verið í gildi í of skamman tíma.
Tengdar fréttir Svandís opin fyrir því að setja á sykurskatt að nýju Dauðsföllum af völdum sykursýki 2 hefur fjölgað hratt síðustu ár og vilja lýðheilsufræðingar að sykurskattur verði lagður á að nýju. Heilbrigðisráðherra er opin fyrir slíku. 4. desember 2017 07:00 Ekki fullreynt með sykurskatt Að mati læknis er enginn vafi um ágæti sykurskatts. Segir sykurskatt ekki verið prófaðan almennilega hér á landi. Ísland eina Vestræna landið þar sem álögur á gosdrykki hafa lækkað síðustu ár í stað þess að hækka. 5. september 2016 07:00 Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira
Svandís opin fyrir því að setja á sykurskatt að nýju Dauðsföllum af völdum sykursýki 2 hefur fjölgað hratt síðustu ár og vilja lýðheilsufræðingar að sykurskattur verði lagður á að nýju. Heilbrigðisráðherra er opin fyrir slíku. 4. desember 2017 07:00
Ekki fullreynt með sykurskatt Að mati læknis er enginn vafi um ágæti sykurskatts. Segir sykurskatt ekki verið prófaðan almennilega hér á landi. Ísland eina Vestræna landið þar sem álögur á gosdrykki hafa lækkað síðustu ár í stað þess að hækka. 5. september 2016 07:00