Gagnrýnir að ferðamönnum standi til boða að gista í tjaldvögnum á nýársnótt Birgir Olgeirsson skrifar 8. desember 2017 16:46 Upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar er allt annað en sáttur við að verið sé að bjóða ferðamönnum upp á að leigja tjaldvagna til að gista í á nýársnótt í gegnum Airbnb. Vísir
Fulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar segir ekki boðlegt að ferðamönnum standi til boða gisting í gömlum bílum, tjöldum og tjaldvögnum í Reykjavík á nýársnótt á vef Airbnb. Greint er frá þessu á vef Túrista þar sem rætt er við Skapta Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúa Samtaka ferðaþjónustunnar.Í frétt Túrista kemur fram að ferðafólki sem er á leið til Íslands yfir áramótin standi til boða að leigja sér tjaldvagna eða jafnvel fólksbíla með dýnu.Greint var frá því í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrir skemmstu að aðeins eitt prósent af gistirými á vef gistimiðlunarinnar Airbnb í Reykjavík séu á lausu yfir áramótin og aðeins örfá hótelherbergi. Í frétt Túrista segir að leiguverðið á tjaldvagni sé ekki lágt. Þannig kosti að leigja tjaldvagn, sem sagður er í Laugardal, um 22 þúsund krónur á nótt og sólarhringsleiga á gamalli Toyota Corolla, með tjaldi í skottinu, sé á sex þúsund krónur. Skapti Örn Ólafsson segir við Túrista að um sé að ræða óviðunandi aðstöðu fyrir ferðamenn þar sem hvorki sé hugað að öryggi né gæðum af neinu tagi. Leyfislaus starfsemi sem þessi sé ólíðandi að mati Skapta.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Bjóða upp á tjaldsvæði inni Tekist á um þjóðaratkvæði á þingi í dag og olíuverð í hæstu hæðum Ætlar ekki að taka úrslitunum sem höfnun Bein útsending: Bjarni og fleiri ræða almannatryggingafrumvarpið Gæsluvarðhald meints barnaníðings framlengt „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Stefnir í norðanhríð í vikunni Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Vilja launað leyfi fyrir þolendur ofbeldis og vernd gegn uppsögn Faldi sig inni í fataskáp þegar lögregluna bar að garði Gildandi kjarasamningar ávísun á áframhaldandi verðbólgu Loks komnar af átakasvæðinu: „Átján tímar af þroti“ Þau skipa lista Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra Sjá meira