Sir John förðunarfræðingur Beyoncé flaug til Íslands til að mæta í tryllt opnunarpartý Reykjavík Makeup School Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 29. nóvember 2017 10:00 Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir (Silla) og Sara Dögg Johansen eigendur Reykjavík Makeup School ásamt Sir John Sigurjón Ragnar Sigurjónsson
Förðunarskólinn Reykjavík Makeup School flutti í vetur í nýtt og glæsilegt húsnæði í Vallakór í Kópavogi og héldu um helgina glæsilegt opnunarpartý að því tilefni. Öllum núverandi og útskrifuðum skólans var boðið á þennan veglega viðburð ásamt vinum og fjölskyldu Söru Daggar og Sillu eigenda skólans og samstarfsaðilum og öðrum boðsgestum. Sir John förðunarfræðingi Beyoncé var boðið í partýið og mætti hann alla leið frá Los Angeles, íslensku förðunarfræðingunum í partýinu til mikillar gleði.Förðunarfræðingar skemmtu sér vel saman um helginaSigurjón Ragnar SigurjónssonSir John er einn færasti förðunarfræðingur í heimi og er frægastur fyrir vinnu sína fyrir Beyoncé en hann hefur einnig farðað margar af stærstu stjörnum í heimi og einnig fyrir öll helstu tískutímaritin í Bandaríkjunum. Hann er núna með vinsæla sjónvarpsþæti, America´s Next Beauty Star en fyrirsætan Adriana Lima er með honum í þáttunum.Sir John sýndi frá Íslandsheimsókn sinni á InstagramSkjáskotSilla og Sara Dögg fengu Sir John til Íslands á síðasta ári til þess að halda hér förðunar- masterclass og var hann alveg heillaður af landinu. Vinskapur þeirra hefur blómstrað síðan þá og lét hann sig því ekki vanta til að fagna með þeim. Skemmti hann sér virkilega vel og tók vel í beiðnir gesta um myndatökur og sjálfsmyndir með honum. Um helgina náði hann einnig að fara út að borða og í Bláa lónið og fleira.Eigendur og starfsfólk Reykjavík Makeup School.Sigurjón Ragnar SigurjónssonVið vorum með glæsilegu jarðaberjaturnana frá Sætum Syndum með hvítu súkkulaði sem lúkkaði svo vel á borðinu ásamt makkarónuturni , ýmsum tegundum af poppi frá Astrik gourmet popcorn og svo voru auðvitað sérútbúnu bleiku Reykjavik Makeup School nammikúlurnar í skálum en Kólus hefur verið með okkur í því að útbúa þessar kúlur,“ segir Sara Dögg.Blöðrurnar vöktu mikla athygli!Sigurjón Ragnar Sigurjónsson„Partývörur sáu svo um glæsilegu blöðruskreytingarnar en blöðrurnar með ljósaseríunum á komu virkilega vel út. Boðið var uppá sérhannaðan bleikan G&T með Gordons gin og Cherry Blossom Tonic frá Thomas Henry ásamt Somersby og Tuborg Julebryg. og Moét, Auðvitað óáfengt líka svo það gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Silla. „Þetta var ótrúlega vel heppnað og það var svo gaman að fagna með öllum förðunarfræðingunum okkar, kennurum og samstarfsaðilum skólans og okkar nánustu,“ bæta þær vinkonur við í lokin.DJ Dóra Júlía sá um að halda uppi stemningunni.Sigurjón Ragnar SigurjónssonSara Dögg og Silla segja að það séu mjög spennandi tímar framundan og ætla þær meðal annars að bæta við spennandi vörumerki við kennsluna og vörupakka nemenda hjá sér á næsta ári. Förðunarfræðin er gríðarlega vinsælt nám þessa stundina og er alltaf langur biðlisti fyrir hvert námskeið hjá þeim í Reykjavík Makeup School.Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir frá þessum flotta viðburði.Myndir/Sigurjón Ragnar
Mest lesið Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Lífið Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Tónlist Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Menning Stjörnur fjármálabransans komu saman Lífið Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Námið ekki eins krefjandi og á Tene Tónlist Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Lífið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Lífið Glæsilegar í Gamla Bíói Lífið Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Lífið Fleiri fréttir Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Sjá meira