Helena: Losnaði um Hildi undir körfunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. nóvember 2017 18:35 Helena er fyrirliði íslenska liðsins. vísir/andri marinó
Helena Sverrisdóttir var aðeins einni stoðsendingu frá því að vera með þrefalda tvennu þegar Ísland tapaði 62-84 fyrir Svartfjallalandi í undankeppni EM 2019 í kvöld. „Þær refsuðu okkur undir lokin. En við sýndum flotta baráttu og skildum allt eftir á gólfinu. Stundum gengur það ekki,“ sagði Helena sem skoraði 18 stig, tók 10 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Tapaðir boltar reyndust íslenska liðinu dýrkeyptir í leiknum í dag. Þeir voru alls 23 talsins. „Þegar við töpuðum boltanum svona hátt uppi á vellinum náðu þær hraðaupphlaupum á okkur. Það drap þetta svolítið niður. En það er bara eitthvað sem við þurfum að laga,“ sagði Helena sem var dugleg að finna Hildi Björgu Kjartansdóttur sem skoraði 23 stig. „Ég var ekkert bara að reyna að gefa á Hildi,“ sagði Helena og hló. „Hildur skoraði vel í dag og það losnaði um hana undir körfunni, sérstaklega í seinni hálfleik. Maður reynir bara að finna þá sem er opin.“ Íslenska liðið heldur nú til Slóvakíu, þar sem Helena lék á sínum tíma, en framundan er leikur gegn heimakonum í undankeppni EM. „Mér líst ágætlega á það. Við erum búnar að einbeita okkur að þessum leik en núna förum við að skoða Slóvakíu. Við spiluðum við þær í síðustu undankeppni og þekkjum þær ágætlega. Við erum bara spenntar að fara út og mæta þeim,“ sagði Helena að lokum
Körfubolti Tengdar fréttir Umfjöllun: Ísland - Svartfjallaland 62-84 | Fín frammistaða en bitlaus sóknarleikur Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta laut í lægra haldi fyrir Svartfjallalandi, 62-84, í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2019 í dag. 11. nóvember 2017 18:15 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Umfjöllun: Ísland - Svartfjallaland 62-84 | Fín frammistaða en bitlaus sóknarleikur Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta laut í lægra haldi fyrir Svartfjallalandi, 62-84, í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2019 í dag. 11. nóvember 2017 18:15