Ívar: Fyrri hálfleikurinn var frábær Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. nóvember 2017 18:50 Ívar hrósaði íslenska liðinu eftir leikinn. vísir/andri marinó
Þrátt fyrir tap fyrir Svartfjallalandi, 62-84, í dag var Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta, ánægður með frammistöðu sinna stelpna í leiknum. Hann segir að 23 tapaðir boltar hafi reynst íslenska liðinu dýrkeyptir í leiknum í dag. „Við sögðum fyrir leikinn að ef við töpuðum boltanum á móti svona góðu liði myndum við lenda í erfiðleikum,“ sagði Ívar sem hrósaði íslenska liðinu fyrir frammistöðuna í dag. „Fyrri hálfleikurinn var frábær og með betri leikjum sem við höfum spilað. Hann jafnaðist nánast á við leikinn gegn Ungverjum. Mér finnst þetta betra lið. Baráttan og vörnin voru frábær og þær voru í miklum vandræðum.“ Ívar sagði að það hefði dregið af íslenska liðinu í seinni hálfleik. „Þessi barátta kostaði að við fórum að tapa boltanum. Við urðum þreyttar. Lykilmenn eins og Helena [Sverrisdóttir] og Hildur [Björg Kjartansdóttir] gera mikið fyrir okkur í vörn og sókn og það kostar þreytu. Þessar stelpur eru búnar að spila úti og eru vanar með svona vörn á sér,“ sagði Ívar. „Mér fannst allt liðið spila vel. Auðvitað er sárt að tapið hafi verið full stórt. Við stjórnuðum leiknum alveg í fyrri hálfleik. Þegar við töpuðum boltanum í fyrri hálfleik fengum við ekki á okkur hraðaupphlaup. Það var kannski munurinn á fyrri og seinni hálfleik.“ Íslenska liðið mætir Slóvakíu ytra í öðrum leik sínum í undankeppninni á miðvikudaginn. „Við þurfum að byggja á því sem við gerðum í dag. Við þurfum að lengja góðu kaflana og vera betri með boltann. Slóvakar spila gríðarlega grimma vörn á heimavelli og við verðum að passa upp á boltann,“ sagði Ívar að endingu.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira