Skoðun

Hagsmunir neytenda

Fyrirkomulag innflutningstakmarkana á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvöru var í tvígang í vikunni dæmt ólögmætt. EFTA-dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að slíkar takmarkanir brytu gegn ákvæðum EES-samningsins. Ríkið tapaði einnig í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar innheimta ríkisins á útboðsgjaldi á heimild til að flytja inn búvörur á lægri tollum var sögð brjóta gegn stjórnarskrá.

Starfandi landbúnaðarráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að íslenska ríkið hefði „brotið gegn EES og um leið gegn hagsmunum íslenskra neytenda með því að koma í veg fyrir innflutning á vörum sem hefði stuðlað að aukinni samkeppni og líklega lægra vöruverði.“

Augljóslega er brýn þörf á að bregðast við þessu með laga- og reglugerðarbreytingum. Enda hafa hagsmunir neytenda greinilega ekki verið hafðir að leiðarljósi. Niðurstaða dómstólanna er eitthvað sem ætti ekki að koma neinum á óvart.

Þannig er þörf á nýrri hugmyndafræði í þessum efnum en samhliða þarf að horfast í augu við þá ömurlegu staðreynd að verksmiðjubúskapur sem síðustu hálfa öld hefur verið knúinn áfram af sýklalyfjum er meiriháttar hnattrænt vandamál.

Í þeirri orðahríð sem brýst út með fyrirsjáanlegum hætti í hvert skipti sem innflutningur búvara er til umræðu verður að hafa þetta í huga. Lausnin verður að felast í því að bæta hag neytenda, bæði með betra og hagstæðara úrvali matvæla og að þeir séu varðir fyrir þeim hættum sem fylgja gegndarlausri ofnotkun sýklalyfja.

Fersk matvæli, eins og grænmeti og kjöt, geta borið fjölónæmar bakteríur, og aukið sýklalyfjaónæmi með ofnotkun sýklalyfja í mönnum og dýrum er einhver mesta heilsufarsógn sem mannkyn stendur frammi fyrir. Um leið og við höfum náð árangri í landbúnaði þá erum við einnig og óbeint að framleiða ónæmar bakteríur.

Íslenskar landbúnaðarvörur hafa algjöra sérstöðu með tilliti til smithættu og það eru forréttindi þeirra sem hér búa að hafa aðgang að öruggum matvælum, að minnsta kosti þegar sýklalyfjaónæmi og smithætta er annars vegar.

Þeirra, sem fá það brýna verkefni að endurmóta fyrirkomulag innflutnings, bíður því sú erfiða vinna að samþætta þessi tvö sjónarsmið. Þetta risavaxna verkefni þyrfti að vinna á alþjóðlegum vettvangi, þar sem þjóðir taka höndum saman um að samræma reglur og eftirlit með sýklalyfjanotkun.

Tækifærið sem við fáum núna, eftir rassskellingu ríkisins í héraði og fyrir EFTA-dómstólnum, er því tímabært og mikilvægt.



Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×