Fjórir Norður-Kóreumenn grunaðir um aðild að drápinu á Kim Jong-nam Atli Ísleifsson skrifar 6. nóvember 2017 13:51 Doan Thi Huong frá Víetnam í fylgd lögreglu þegar hún heimsótti flugvöllinn í Kúala Lúmpúr í síðasta mánuði. Vísir/AFP
Lögregla í Malasíu hefur birt nöfn fjögurra manna sem grunaðir eru um aðild að morðinu á Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu. Á sama tíma halda málaferli á hendur tveimur konum, þeim Siti Aisyah frá Indónesíu og Doan Thi Huong frá Víetnam, áfram en þær eru grunaðar um að hafa eitrað fyrir Kim Jong-nam. Verjendur þeirra Siti Aisyah og Huong segja að þær hafi verið gabbaðar og að þær hafi ekki vitað að þær væru að eitra fyrir Kim. Á myndbandsupptökum á flugvellinum í Kúala Lúmpúr sést til fjórmenninganna, sem Interpol lýsti eftir í mars, þar sem þeir sjást ræða við konurnar skömmu áður en þær eitra fyrir Kim. Í frétt Reuters kemur fram að mennirnir sem um ræðir – Hong Song Hac, Ri Ji Hyon, Ri Jae Nam og O Jong Gil – séu Norður-Kóreumenn. Er einn mannanna sagður vera starfsmaður sendiráðs Norður-Kóreu og annar starfsmaður norður-kóreska flugfélagsins Air Koryo. Ráðist var á Kim á flugvellinum í Kúala Lúmpúr í febrúar síðastliðinn og lést hann um tveimur tímum eftir að eitrað hafði verið fyrir honum. Árásin er talin tengjast norður-kóreskum stjórnvöldum, en Norður-Kóreustjórn hefur ítrekað hafnað slíkum ásökunum.
Morðið á Kim Jong-nam Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira