Formaður KKÍ um aðstöðuleysi landsliðanna: Ríkisvaldsins að sjá til þess að þetta sé í lagi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. nóvember 2017 12:30
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Svartfjallalandi í undankeppni EM 2019 í Laugardalshöllinni á laugardaginn kemur. Eins og oft áður hefur reynst erfitt að finna æfingatíma fyrir landsliðin okkar. „Okkur vantaði æfingar fyrir stelpurnar í þessum glugga. Það er auðvitað erfitt að komast inn í Laugardalshöllina því það er ýmislegt annað um að vera þar. Þetta er líka æfingahús Þróttar og við getum ekki endalaust tekið æfingatíma af börnunum þar,“ sagði Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, í samtali við Bítið á Bylgjunni. En myndu hlutirnir lagast ef Þróttur myndi fá sitt eigið íþróttahús? „Það myndi batna til muna og þá fengjum við aðgang að húsinu fyrir æfingar. Ekki bara fyrir A-landsliðin okkar heldur líka yngri landsliðin,“ sagði Hannes. „Þegar við fáum æfingatíma erum við algjörlega háð velvilja félaganna okkar og sveitarfélaganna. Okkur finnst alveg vera kominn tími á það, í allri þessari umræðu sem er búin að vera upp á síðkastið, að menn átti sig á þessu aðstöðuleysi fyrir landsliðin.“ Hannes segir að íslenska kvennalandsliðið þurfi að æfa hér og þar í aðdraganda leiksins gegn Svartfjallalandi. „Núna erum við að æfa á fleiri stöðum en í Höllinni. Við erum að æfa í Kópavogi, Garðabænum, Reykjanesbæ, Akranesi og hjá KR. Ég held að A-landslið kvenna æfi á einhverjum 5-6 stöðum í þessari viku,“ sagði Hannes. En hver er lausnin í þessu erfiða máli? „Við þurfum að fá ríkisvaldið meira að borðinu. Það þarf að átta sig á ábyrgðinni í þessu. Þetta eru landsliðin okkar. Sveitafélögin bera ábyrgð á félagsliðunum, ef við getum orðað það þannig, og þá er það að sjálfsögðu ríkisvaldsins að sjá til þess að þessi aðstaða sé í lagi,“ sagði Hannes. „Við erum ekkert að tala um að fá nýtt íþróttahús eða nýja höll á morgun, heldur að ríkisvaldið komi að því að hjálpa okkur.“ Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Í beinni: KA - Víkingur | Á sama tíma að ári Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira