Fótbolti

Jói Berg: Strákarnir orðnir þreyttir á að gera grín að markaleysinu

Birgir Olgeirsson skrifar
„Þetta var örugglega einn sá stærsti sigur í sögu íslensks fótbolta að fara á svona sterkan útivöll, auðvitað gerðum við magnaða hluti á EM, að vinna England var mjög stórt, og þetta er líklega nálægt því,“ sagði landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson sem skoraði eitt af mörkunum þremur í sigri íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Tyrkjum í kvöld.

„Þetta kemur okkur í þessa frábæru stöðu sem við vildum vera í, að hafa þetta í okkar höndum, og þannig viljum við hafa það,“ sagði Jóhann Berg en með sigrinum er Ísland með tveggja stiga forystu á toppi I-riðils eftir að Króatar gerðu jafntefli við Finna á heimavelli sínum í kvöld.

Hann sagði það hafa verið mikilvægt að ná inn marki snemma, þegar hann var spurður út í mark sitt í kvöld. „Það hjálpaði okkur því þá þurftu þeir að sækja og fara framar á völlinn. Þá fengum við enn fleiri færi. Að vinna Tyrki þrjú núll er ansi magnað og sýnir hversu ótrúlegir við erum.“

Mark Jóhanns Bergs var fyrsta mótsmark hans með landsliðinu í um fjögur ár og var hann spurður hvort félagar hans hefðu verið farnir að gera grín að markaþurrðinni svaraði hann því játandi en að þeir hefðu gefist upp á því með tímanum  enda nánast búnir upp vonina um mark frá honum með landsliðinu í mótsleik.

„En ég reyni að hjálpa liðinu í öllu því sem ég geri, hvort sem með að leggja upp mörk eða vinna varnarvinnu sem ég hef þurft að gera líka á tímabili. En það er ekkert betra en að skora mark og sérstaklega í svona stórum og mikilvægum leik.“

Hann sagði skipulagið hafa heppnast nánast upp á tíu, liðið hefði geta haldið boltanum betur á köflum.

„Kósóvó er næst og það er en stærri leikur. Ef við vinnum þá erum við komnir á HM.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×